Heiðar tæpur vegna veikinda 7. júní 2005 00:01
Ísland mætir Möltu í kvöld í undankeppni HM. Heiðar Helguson gat ekki tekið þátt í leiknum gegn Ungverjalandi sökum leikbanns og óvissa er með þátttöku hans í leiknum í kvöld vegna veikinda. Íslenska landsliðið æfði í gær fyrir leikinn gegn Möltu sem verður á Laugardalsvelli í kvöld. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af æfingunni þurfti Heiðar Helguson að hætta þar sem hann var slappur og sagði Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfaranna, við Fréttablaðið um kvöldmatarleytið í gær að ólíklegt væri að hann yrði alveg tilbúinn í leikinn þó að erfitt væri að meta það á þessari stundu. Metið verður í samráði við lækni hvað gert verður. Ný varnarlína Ljóst er að það verður alveg ný varnarlína í leiknum gegn Möltu í kvöld frá því gegn Ungverjalandi vegna meiðsla og leikbanna. Logi segist aldrei hafa lent í því á sínum þjálfaraferli að neyðast til að skipta um heila vörn. „Hvorki ég né Ásgeir höfum lent í einhverju líkt þessu, í leiknum á laugardag fór stór hluti fyrri hálfleiks í að gera að meiðslum manna. Þetta var ótrúleg upplifun en við reynum að taka það jákvæða úr leiknum með okkur í leikinn gegn Möltu. Það er margt jákvætt í okkar leik, góð stemmning og góður vinnuandi í hópnum. Þetta er enn fyrir hendi þrátt fyrir áföllin," sagði Logi. Þegar Ísland og Malta mættust í fyrri leiknum voru Möltumenn með tvo menn fyrir aftan fjögurra manna línu, þrjá þar fyrir framan og einn fremstan. „Þeir léku aftarlega gegn okkur í fyrri leiknum og við reiknum með að þeir geri það sama nú. Við þurfum að koma af hörku í leikinn og vera með mikla pressu á boltann eins og gerðist gegn Ungverjum. Einnig þurfum við að nýta vel breidd vallarins." Óhjákvæmilega verða talsverðar breytingar á liði Íslands í kvöld, bæði aftarlega og framarlega að sögn Loga. Bjarni Ólafur Eiríksson, leikmaður Vals, var kallaður inn í landsliðið fyrir leikinn en það er í fyrsta sinn sem hann er valinn. „Bjarni hefur staðið sig vel á æfingum og er framtíðarmaður. Við treystum ungu leikmönnunum fullkomlega til að fara út í þetta verkefni," sagði Logi Ólafsson.
Íslenski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Fleiri fréttir Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Sjá meira