Færeyingar vilja aðild að EFTA 11. ágúst 2005 00:01
Færeyingar vilja sækja um að aðild að Norðurlandaráði og EFTA en Færeyingar lúta enn yfirráðum Dana og hafa aðeins sjálfsstjórn og utanríkismál landsins eru í höndum Dana. Lögmaður Færeyinga, Jóannes Eidesgaard, sagði í hinni svokölluðu lögmannsræðu á ÓIafsvöku í Færeyjum undir lok síðasta mánaðar að Færeyingar vildu taka þátt í alþjóðlegu samstarfi og aðild að EFTA myndi hugnast þjóð sinni vel. Þá hefur aðild Færeyinga borið á góma í Norðurlandaráði síðustu tvö árin en að undanförnu þykja Færeyingar hafa lagt sífellt meiri áherslu á aðildarumsókn sína að ráðinu. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að Íslendingar hafi veitt Færeyingum ráðgjöf og annað sem þeir hafi sóst eftir og hvatt þá til að styrkja tengslanet sín við bæði EFTA og Norðurlandaráð en erfitt sé að styðja aðildarumsóknir þeirra að svo stöddu. "Þeir verða að hafa sína þjóðréttarlega stöðu á hreinu og gera þá stöðu upp við Dani. Við viljum gjarnan styðja þá en getum það ekki meðan svo er en hversu víðtækt umboð þeir hafa er atriði sem er þjóðréttarlegt og eitthvað sem við viljum að þeir eigi við Dani," segir Gunnar. "Ég hef stutt það með kjafti og klóm undanfarin ár að Færeyingar fái aðild að Norðurlandaráði," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna og fulltrúi í Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Hann segir að tvær leiðir séu mögulegar fyrir Færeyinga til þess að öðlast aðild að ráðinu og önnur sé að dönsku stjórnarskránni verði breytt. "Sú leið er auðvitað svolítið fjarsótt en sú leið sem er líklegri er að Helsinki-sáttmála Norðurlandaráðs verði breytt en til þess þarf samþykki allra þjóða," segir Steingrímur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Innlent Fleiri fréttir Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sjá meira