Bætur fyrir Kópavogshöfn 20. ágúst 2005 00:01
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi R-listans og formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segist líta svo á að Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs sé til viðræðu um nýjan flugvöll höfðuborgarsvæðisins á Lönguskerjum. Gunnar sagði meðal annars í samtali við Fréttablaðið í gær að nýr flugvöllur á Lönguskerjum yrði til þess að Kópavogshöfn yrði innlyksa og fyrir það yrðu að koma bætur. "Ef maður skilur stóryrðin frá sýnist mér Gunnar vera með mikilvæga og athyglisverða yfirlýsingu um að bæjaryfirvöld í Kópavogi séu til viðræðu um bætur fyrir Kópavogshöfn verði hún innlyksa vegna flugvallargerðar á Lönguskerjum," segir Dagur. Hann kveðst ekki vita hvort útfærslan á flugbrautum þar komi í veg fyrir skipaumferð um Kópavogshöfn en ekki sé útilokað að svo verði. "Fjölmörgum spurningum er enn ósvarað, en ég bendi einnig á að bæjarstjórinn á Álftanesi kveðst hlynntur flugvelli á Lönguskerjum." Félög í flugrekstri hafa gefið til kynna að þau vilji helst hafa starfsemina áfram á núverandi stað í Vatnsmýrinni en eru þó ekki andsnúin því að skoða nýjar hugmyndir. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, segir að ef af nýjum flugvelli verði þurfi að setja gerð hans í útboð á evrópska efnahagssvæðinu. "Nú er starfandi nefnd á vegum samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Ef niðurstaða yfirvalda eftir þá vinnu verður að byggja nýjan flugvöll í eða við Reykjavík yrði að setja slíka framkvæmd í útboð á evrópska efnahagssvæðinu. Við erum bundin af alþjóðlegum samþykktum um gerð flugvalla, meðal annars reglum og stöðlum Alþjóðlegu flugmálastofnunarinnar og Flugmálastjórn myndi koma að því," segir Heimir. Hann segir að Flugmálastjórn hafi ekki gert neinar rannsóknir á flugvallarstæði á Lönguskerjum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni Sjá meira