Alda Leif til meistara Hollands 20. ágúst 2005 00:01
Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS í 1. deild kvenna í körfubolta og fimmta leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, mun spila með hollenska liðinu Den Helder í hollensku úrvalsdeildinni næsta vetur. Den Helder vann meistaratitilinn annað árið í röð á síðasta keppnistímabili og hefur orðið meistari alls ellefu sinnum frá árinu 1985. Með liðinu leika nú meðal annars tvær af efnilegustu körfuknattleikskonum Hollands, 186 sm framherjinn Leonie Kooij og 188 sm miðherjinn Naomi Halman en þær eru báðar aðeins 19 ára. Den Helder-liðið er þekkt fyrir frábært uppbyggingarstarf og þar hafa margar af fremstu körfuboltakonum landsins stigið sín fyrstu spor en þjálfari liðsins er jafnframt þjálfari unglingalandsliða Hollands. Alda Leif sem er 26 ára gömul var valin í lið ársins í sjöunda sinn síðasta vetur, leiddi deildina í vítanýtingu (88,8%) og var með 15,6 stig og 5,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þetta er mikill missir fyrir ÍS en liðið hefur nú misst báða leikstjórnendur sína frá því í fyrra, því á dögunum gekk Erna Rún Magnúsdóttir til liðs við Grindavík á nýjan leik. Ívar Ásgrímsson hefur tekið við þjálfun liðsins á ný eftir árs fjarveru. Alda Leif og kærasti hennar Sigurður Þorvaldsson verða því bæði á fullu í hollenska körfuboltanum næsta vetur því Sigurður mun spila með Woon!Aris Leeuwarden ásamt Hlyni Bæringssyni en sá bær er í klukkutíma fjarlægð frá Den Helder. Þetta er í annað sinn sem Alda Leif reynir fyrir sér erlendis en hún lék við góðan orðstír hjá danska liðinu Holbæk veturinn 2000-01.
Körfubolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Sjá meira