Flestir vilja Gísla Martein 29. ágúst 2005 00:01
Flestir Reykvíkingar vilja Gísla Martein Baldursson sem næsta borgarstjóra samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Tæpur fjórðungur þeirra sem tóku afstöðu valdi hann. Gísli Marteinn, sem nú er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tilkynnti á sunnudag að hann sæktist eftir efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks í komandi prófkjöri fyrir borgarstjórnarkosningar. Stefán Jón Hafstein, efsti maður Samfylkingar á lista Reykjavíkurlistans, var næstoftast nefndur sem vænlegt borgarstjórnarefni, en rúmur fimmtungur nefndi hann á nafn. 18 prósent sögðust vilja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík. Fjórða í könnuninni varð núverandi borgarstjóri, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, og nefndu hana rúm tíu prósent þeirra sem tóku afstöðu. "Ég er þakklátur fyrir þessa könnun og finnst gaman að sjá að fólk hefur trú á mér sérstaklega að því að könnunin var tekin áður en ég lýsti því yfir að ég stefndi á fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins," sagði Gísli Marteinn Baldursson. "Ég segi fyrir mig að ég er voðalega glaður með þessa niðurstöðu en ég ætla ekki að gefa neitt út um aðra," segir Stefán Jón Hafstein. "Niðurstaðan í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna skiptir auðvitað mestu máli í þessu samhengi en þar munu flokksbundnir sjálfstæðismenn velja fulltrúa flokksins á framboðslista fyrir komandi kosningar," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. "Könnunin er gerð á laugardag og sunnudag þegar áskorendurnir tveir, Gísli Marteinn og Stefán Jón, voru áberandi í fjölmiðlum," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni Sjá meira