Greiði Kynnisferðum tíund 2. september 2005 00:01
Rútubílaeigendur gera alvarlegar athugasemdir við útboð ríkisins á sérleyfisakstri. Í skilmálum er gert ráð fyrir að Kynnisferðir fái í sinn hlut tíu prósent af sölu farmiða og að sérleyfishafar greiði Vegagerðinni 70 milljónir króna í aðstöðugjald. Vegagerðin auglýsti fyrir tíu dögum útboð á sérleyfisleiðum á Íslandi næstu þrjú ár. Þórir Garðarsson, markaðsstjóri Allrahanda hf., segir að svo virðist sem Kynnisferðir, sem sé mjög stórt fyrirtæki í þessari þjónustu í dag, hafi fengið upp í hendurnar eins konar einokunarsamning við Vegagerðina um rekstur samgöngumiðstöðvar í Reykjavík í húsnæði Umferðarmiðstöðvarinnar. Hann segir aðra rútubílaeigendur furða sig á ákvæðum útboðsins um að Kynnisferðir eigi að fá í sinn hlut 10 prósent af sölu farmiða sérleyfishafans, að sala farmiða í húsi Umferðarmiðstöðvarinnar verði alfarið í höndum Kynnisferða og að óheimilt verði fyrir aðra aðila að selja miða í eða við húsið. Þá segir Þórir nýja skattheimtu felast í útboðinu og það hafi komið flatt upp á menn. Á samningstímanum, sem sé áætlaður þrjú ár, beri þeim sérleyfishöfum sem vilji bjóða í út frá Reykjavík að gera ráð fyrir því í tilboðið sínu að þurfa að greiða 70 milljónir í aðstöðugjald til Vegagerðarinnar. Spurður hvort hann telji líklegt að menn kanni réttarstöðu sína, t.d. gagnvart samkeppnislögum, svarar Þórir því játandi og segist einnig telja líklegt að alþingismenn, sem samþykki fjárveitingar til þess að styrkja almenningssamgöngur á Íslandi, velti fyrir sér hvort fullkomin sátt sé um það að stór hluti af þeim fjármunum sem þeir séu hugsanlega að ráðstafa til þess að niðurgreiða almenningsvagnaþjónustu á Íslandi fari til greiðslu aðstöðugjalda hjá Vegagerðinni. Menn skilji ekki fyrir hvað sé verið að borga.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni Sjá meira