Dómaraskortur í körfunni 28. september 2005 00:01 "
Það hefur vantað körfuboltadómara undanfarin ár. Dómarar hafa verið yfirhlaðnir verkefnum og hver einasta helgi frá október og fram í apríl hefur verið undirlögð. Við þurfum að manna leiki í meistaraflokkum og yngri flokkum og alls eru þetta 1500 leikir," sagði Hannes Þ. Jónsson, formaður dómaranefndar Körfuboltasambandsins við Fréttablaðið. Körfuboltaleiktíðin hefst eftir hálfan mánuð. Metmæting var á haustfund dómaranefndar KKÍ í vikunni en 36 dómarar mættu sem er samt engan veginn nóg fyrir verkefni vetrarins. Stærsta vandamálið í dómgæslunni er höfuðborgarsvæðið."Okkar sárvantar dómara á höfuðborgarsvæðinu og reyndar á Suðurnesjunum líka. KR á t.d. engan dómara, Valur á einn og Grindavík engan. Hins vegar er nóg af dómurum á Suðurlandi og Vesturlandi. Í Borgarnesi eru sex dómarar, hjá sameiginlegu liði Hamri/Selfoss eru fimm og Hrunamenn sem eru í 2. deild eiga 3 dómara," segir Hannes. Dómurum er skipti í þrjá flokka og þeir sem dæma í Intersport-deild karla eru í A flokki. Þeir eru 18 en 15 þeirra verða virkir í vetur. "Það má ekkert út af bregða því það þarf tólf dómara í hverja umferð. Það er ljóst að þegar líða fer á veturinn að einhverjir B-dómarar fá tækifæri í efstu deild. Okkur vantar fleiri dómara. Undanfarin þrjú ár hafa 200 manns tekið dómarapróf en örfáir hafa skilað sér. Sem dæmi mættu tíu manns á dómaranámskeið í vor í Reykjavík en enginn af þeim skilaði sér í dómgæslu á vegum sambandsins," segir Hannes. Um helgina verður dómaranefnd KKÍ með annan dómarafund og vonast Hannes til þess að þeir dómarar sem ekki komust í vikunni mæti og taki skriflegt og verklegt próf. Nóg er af verkefnum og ágætis aukapening að hafa upp úr dómgæslunni.Tekjur dómara í boltagreinum fyrir hvern dæmdan leik: Körfubolti Úrvalsdeild 6.400 Úrslitakeppni úrvalsdeildar 10.100 1. deild kvenna 5.500 Handbolti Úrvalsdeild ka. og kv. 8.300 Úrslitakeppni 14.190 Fótbolti Úrvalsdeild karla 11.545 Aðstoðardómarar 9.035 Úrvalsdeild kvenna 6.035 Auk þessa fá allir dómarar bílastyrk og dagpeninga í lengri ferðir.
Körfubolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Sjá meira