Troðsla tryggði sigurinn 3. október 2005 00:01
Njarðvíkingar sigruðu á æfingamóti í Aarhus í Danmörku þegar liðið lagði heimamenn í Bakken Bears að velli í úrslitaleik með 69 stigum gegn 67. Heimamenn voru sjö stigum yfir þegar skammt var til leiksloka en Njarðvíkingum tókst að skora níu síðustu stigin í leiknum og unnu því með tveggja stiga mun. Egill Jónasson tryggði Njarðvíkingum sigurinn sex sekúndum fyrir leikslok með glæsilegri troðslu. Þetta er annað árið í röð sem Njarðvík vinnur á æfingamóti sem Bakken Bears heldur á þessum árstíma. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var að vonum ánægður með sína menn. "Þetta gekk ljómandi vel. Það var mikil dramatík undir lok leiksins þar sem okkur tókst að skora níu stig í röð og tryggja okkur sigurinn. Egill skoraði sigurkörfuna með því troða boltanum ofan í körfuna nokkrum sekúndum fyrir leikslok og það var einstaklega gaman að sigra með þeim hætti." Einar Árni sagði nokkra leikmenn danska liðsins hafa verið erfiða viðureignar vegna stærðarinnar. "Það voru fimm leikmenn yfir 205 sentímetrar og það olli auðvitað töluverðum vandræðum. En það er lærdómsríkt að spila gegn svo hávöxnum mönnum þar sem það eru ekki svo margir mjög hávaxnir leikmenn hér á landi." Þór frá Akureyri tók einnig þátt í mótinu og endaði í sjötta sæti eftir að hafa tapað fyrir Svendborg í leik um fimmta sæti. Einar Árni segir Njarðvíkinga ætla að koma grimma til leiks þegar Íslandsmótið hefst. "Þetta verður skemmtilegur vetur. Við erum að komast í gott form og verðum tilbúnir þegar mótið hefst. Ég á von á jafnri og skemmtilegri keppni í vetur."
Körfubolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Sjá meira