Arnór, Sigfús og Alfreð slógu met 6. október 2005 00:01
Arnór Atlason, Sigfús Sigurðsson og þjálfarinn Alfreð Gíslason í Magdeburg, slógu nýtt met í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með 23ja marka sigri á botnliði Wilhelmshavener HV í fyrrakvöld, 45-22. Arnór fékk loksins tækifæri í liði Magdeburg og skoraði sjö mörk og Sigfús skoraði þrjú. Magdeburg jafnaði met Kiel sem sigraði Pfullingen einnig með 23ja marka mun, 48-25, fyrir tveimur árum. "Ég spilaði allan leikinn, lengst af sem leikstjórnandi en síðasta korterið fór ég í hornið til að leysa Stefan Kretzschmar af hólmi en hann var hvíldur fyrir Meistaradeildina. Ég hef ekki verið þekktur sem liprasti hornamaður í heimi en ég skoraði samt tvö mörk úr horninu," sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið. Hann missti algjörlega af undirbúningi Magdeburg fyrir leiktíðina þar sem hann var upptekinn með íslenska U21 árs landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi. Þar sem samkeppnin í liðinu er hörð hefur Arnór þurft að verma varamannabekkinn í haust og stundum þurft að horfa á leikina úr stúkunni. "Mér var auðvitað tjáð að ég sé framtíðar leikmaður. Ég vil samt sem áður láta að mér kveða þótt ég sé hálfgerð varaskeifa eins og er og þess vegna var gott að fá tækifærið gegn Wilhelmshavener og sýna þeim hvað ég get. Sigfús spilaði einnig mjög vel í vörninni en hann tekur minni þátt í sóknarleiknum en skoraði samt þrjú mörk," sagði Arnór. Alfreð Gíslason sagði við Fréttablaðið á dögunum að þetta yrði líklega hans síðasta tímabil sem þjálfari Magdeburg. "Það kemur okkur ekkert við hvað Alfreð gerir. Við ræðum þetta ekkert innan liðsins. Alfreð nýtur mikillar virðingar og hann sinnir vinnu sinni alveg hundrað present," sagði Arnór.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira