Höttur fær til sín nýja menn 14. september 2005 00:01
Hattarmenn hafa fengið nýjan bandarískan þjálfara til að stjórna liðinu í frumraun sinni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Með honum kemur nýr leikmaður sem meðal annars reyndi fyrir sér í NBA-deildinni í sumar. Höttur vann sér þátttökurétt í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn í sögu félagsins síðasta vor og það er hugur í mönnum á Austurlandi á að takast á við úrvalsdeildina í vetur. Eugene Christopher þjálfaði lið Hattar í 1. deildinni í fyrravetur en hann gekk undan því að þjálfa liðið í vetur en mun samt sem áður spila með liðinu. Í hans stað hafa Hattarmenn ráðið Kirk Baker 37 ára gamlan Bandaríkjamann til að þjálfa liðið. Auk þess hafa þeir fengið Kanadamanninn Kwbana Beckles til að spila með liðinu en hann er rúmlega tveggja metra maður sem hefur enskt ríkisfang og reyndi fyrir sér hjá NBA-liðinu Atlanta Hawks í sumar. Beckles var í Lee háskólanum síðasta vetur þar sem hann var með 11,2 stig og 5,8 fráköst að meðaltali á þeim 23,4 mínútum sem hann spilaði í leik."Það var samkomulag gert við Eugene um að hann hætti að þjálfa liðið," sagði Hafsteinn Jónsson formaður Hattar en nýráðinn þjálfari mun ekki spila með liðinu þótt að þar færi frambærilegur körfuboltamaður. "Við getum ekkert notað hann sem leikmann því það má ekki vera með meira en einn kana. Hann er líka orðinn svo gamall og er því hættur að spila," sagði Hafsteinn en hann var að taka á móti nýju mönnunum í gær og þeir eru síðan á leið með liðið á Greifamótið á Akureyri um helgina þar sem þeir fá fyrstu reynsluna á að takast á við bestu körfuboltalið landsins.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira