Hugsa um leikinn, annað er bónus 6. júní 2005 00:01 „
Við erum að gíra okkur upp fyrir leikinn," sagði Ólafur Ingi Skúlason fyrirliði íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 21 árs og yngri sem mætir Maltverjum í dag, kl. 18 á KR-velli. Liðið lék á föstudaginn gegn Ungverjum og töpuðu, 1–0, en liðið hafði fram að því unnið tvo leiki af fimm og gat jafnað Ungverja að stigum. Það er því fátt annað eftir en að spila upp á heiðurinn, rétt eins og hjá A-landsliðinu. Hjá sumum leikmönnum er þó enn meira undir en margir þeirra vonast þeir til að einn af þeim fjölmörgu útsendurum erlendra félagsliða sem munu fylgjast með leiknum taki sérstaklega eftir þeim. Eini leikmaðurinn í hópnum sem er ekki samningsbundinn liði, íslensku né erlendu, er Ólafur Ingi sem hefur undanfarin ár verið á mála hjá enska stórveldinu Arsenal. Ekki fékk hann mörg tækifæri með aðalliðinu en hann stóð sig vel með varaliðinu. En Arsenal leysti hann undan samningi í vor og vill hann því komast að hjá öðru evrópsku félagi. „Ég held að þó svo að það sé mikið undir hjá okkur persónulega í leikjum sem þessum hugsum við fyrst og fremst um liðið og að ná hagstæðum úrslitum. Annað er bara bónus. Við ætlum okkur að vinna á morgun, sérstaklega eftir að við töpuðum úti á Möltu." „En það er tvímælalaust mikilvægt fyrir mig persónulega að standa mig vel. Ég reyni þó að hugsa ekki mikið um það eða setja pressu á sjálfan mig á neinn hátt. Fyrir mér eru þetta bara tveir venjulegir leikir – enda tel ég að ef við spilum á eðlilegri getu stöndum við okkur allir vel," sagði Ólafur Ingi. Hann segir það erfitt að finna nýtt félag. „En þetta ætti að geta gengið ágætlega. Ég er að koma frá stórum klúbbi, hef spilað tvo A-landsleiki og er algerlega frír. En liðin eru varkár, þau vilja sjá leikmennina oftar en einu sinni og því gæti þess vegna dregist fram á sumarið. En ég er staðráðinn í að standa mig vel á morgun."
Íslenski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira