Innlent

Einokun á lénsskráningunni .is

Vefsíða fyrirtækisins. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að vissulega hafi verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með endingunni .is
Vefsíða fyrirtækisins. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að vissulega hafi verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með endingunni .is

Skráning léna með endinguna .is er í höndum einkaaðila á Íslandi, ólíkt flestum öðrum löndum. Internet á Íslandi hf., sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur einkaleyfi á því að skrá lén sem hafa .is endinguna. Kostnaður við að skrá lén er mun hærri hér en í löndunum í kringum okkur.

Árið 1987 var SURIS, Samtökum um upplýsinganet rannsóknaraðila á Íslandi, úthlutað einkaleyfi á skráningu léna með endinguna .is af alþjóðlegu internetsamtökunum IANA. Átta árum síðar tók Internet á Íslandi hf. við úthlutun lénanna. Fyrirtækið var síðar selt Íslandssíma og er nú í eigu Dagsbrúnar. Það hefur einkarétt á skráningu léna með þessa endingu. Leyfið, sem er gefið út af IANA, hefur engin sérstök tímamörk.

"Í langflestum tilfellum er skráning þjóðarléna í höndum stofnana sem eru annað hvort í eigu ríkis viðkomandi lands eða allra hagsmunaaðila sem koma að málinu," segir Maríus Ólafsson, netstjóri hjá Internet á Íslandi. "Hér er reksturinn hins vegar í eigu aðeins eins af hagsmunaaðilunum. Það er ekkert leyndarmál."

Hrafnkell Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir heppilegt fyrir alla aðila ef skoðað væri hvort stjórnvöld ættu að setja almennar reglur um úthlutun á lénum. "Það má ræða með hvaða hætti heimildin til úthlutunarinnar væri gefin út. Vissulega hefur verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með .is-endingunni."

"Okkar afstaða er mjög einföld, við teljum einokun alltaf af hinu verra fyrir neytendur," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. "Ef nauðsynlegt er að vera með einokun á einhverju sviði þá er sjónarmið Neytendasamtakanna að það eigi að vera í höndum hins opinbera."

Stofngjald léns með endinguna .is hjá Internet á Íslandi er 12.450 krónur. Árgjald sama léns er síðan 7.918 krónur. Til samanburðar kostar tæpar fimm þúsund krónur að stofna lén með endinguna .fo í Færeyjum, en samanburður við Færeyjar liggur beinast við vegna staðsetningar og markaðsstærðar. Þar er árgjaldið 5.500 krónur. Skráning á léni með endinguna .com kostar að meðaltali um þúsund krónur á ári og er án sérstaks stofngjalds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×