Innlent

Sæta varðhaldi til 25. ágúst

Lögregla Fjórir menn, sem handteknir voru fyrir að hafa flutt á þriðja tug kílóa af fíkniefnum til landsins og hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl, munu sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 25. ágúst, þegar mál þeirra fer fyrir dómstóla.

Þrír mannanna fjögurra, þriggja Íslendinga og eins Hollendings, voru handteknir á skírdag í vöruhúsi á Krókhálsi þegar þeir voru að fjarlægja efnin, fimmtán kíló af amfetamíni og tíu kíló af hassi, úr bensíntanki bifreiðar.

Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn segir málinu lokið af þeirra hálfu og mennirnir bíði nú málsmeðferðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×