Innlent

Gefur kost á sér í 2. til 3. sæti

Bryndís Friðgeirsdóttir
Bryndís Friðgeirsdóttir

Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Vestfjörðum, sækist eftir 2.-3. sæti á framboðslista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi. Bryndís hefur verið bæjarfulltrúi síðastliðin fimmtán ár, fyrst fyrir Ísafjarðarkaupstað og síðar Ísafjarðarbæ eftir sameiningu sveitarfélaga á svæðinu. Hún hefur tvisvar tekið sæti sem varamaður á Alþingi.

Bryndís er kennari að mennt og starfaði sem grunnskólakennari á Ísafirði í fimmtán ár. Hún hefur gegnt stöðu svæðisfulltrúa Rauða krossins á Vestfjörðum síðastliðin níu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×