D-listi og F-listi að ná saman í Reykjavík? 29. maí 2006 12:04 MYND/Pjetur
Margt bendir til að Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn séu að ná saman um myndun borgarstjórnar í Reykjavík. Efstu menn á lista Frjálslyndra sitja nú á undirbúningsfundi fyrir fund með sjálfstæðismönnum upp úr hádegi. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, sagði fyrir stundu að vandlega þurfi að fara yfir stöðuna og að flokkurinn sé tregur til að kvika frá helstu áherslumálum sínum, eins og flugvallarmálinu. Sem kunnugt er vill F-listinn að flugvöllurinn verði áfam í Vatnsmýrinni, en þó með breytingum sem auka munu nýtingu mýrarinnar undir annað. Ef ekki verður af samkomulagi þessara tveggja flokka reikna kunnugir með þvi að Samfylkingin, Vinstri grænir og Framsóknarmenn muni ræða við Frjálslynda um meirihlutamyndun en ekki er loku fyrir það skotið að fulltrúi Framsóknarflokks gangi til liðs við sjálfstæðismenn, ef þeir ná ekki samkomulagi við Frjálslynda. Hugmyndir um samstarf við Frjálslynda leggst ekki vel í Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sem segir á heimasíðu sinni að reynsla sín af framgöngu Ólafs F. Magnússonar í borgarstjórn Reykjavíkur hafi oftar en einu sinni orðið tilefni þungrar gagnrýni af sinni hálfu. Á Akureyri eiga Samfylkingin, L-listinn og Vinstri grænir í viðræðum um myndun meirihluta. Í Árborg ætla fulltrúar Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Samfylkingar að hittast síðdegis til að halda áfram samstarfsviðræðum, en þar unnu sjálfstæðismenn mikið á í kosningunum. Á Akranesi eiga Frjálslyndir og sjálfstæðismenn í viðræðum um myndun nýs meirihluta.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Sjá meira