Innlent

Lúðvík og Björgvin gefa kost á sér í 1. sæti

Tveir þingmenn hafa nú gefið kost á sér í sæti Margrétar Frímannsdóttur sem hyggst hætta í stjórnmálum.
Tveir þingmenn hafa nú gefið kost á sér í sæti Margrétar Frímannsdóttur sem hyggst hætta í stjórnmálum. Mynd/E.Ól

Samfylkingarþingmennirnir Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson gáfu í gærkvöldi báðir formlega kost á sér í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, en Margrét Frímannsdóttir, sem skipað hefur það sæti, gefur ekki kost á sér. Lúðvík á ellefu ára þingmennsku að baki og Björgvin tók sæti á Alþingi fyrir þremur árum. Áður hefur Jón Gunnarsson Alþingismaður gefið kost á sér í fyrsta sætið og verður prófkjör haldið fjórða nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×