Innlent

Telja bæjarstjóra hafa svikið gefin loforð

Höskuldur Kári Schram skrifar
Íbúar við Álafosskvos eru ekki sáttir við fyrirhugaðar vegaframkvæmdir.
Íbúar við Álafosskvos eru ekki sáttir við fyrirhugaðar vegaframkvæmdir. MYND/VG

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur svikið gefin loforð í tengslum við framkvæmdirnar við Álafossveg að mati fulltrúa Varmársamtakanna. Gjaldkeri samtakanna segir ekkert samráð verið haft við íbúa vegna þeirra framkvæmda sem hófust í gær. Íbúar kölluðu á lögreglu morgun, í annað skiptið á innan við einum sólarhring til að stöðva framkvæmdirnar. Bæjarstjóri segir íbúa fara með rangt mál og ekki sé búið að svíkja nein loforð.

„Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur algjörlega brugðist þeim loforðum sem hún gaf," sagði Sigrún Pálsdóttir, gjaldkeri Varmársamtakanna, í samtali við Vísi. „Nú er hún bara komin á þing og telur sig greinilega ekki lengur skuldbundna þeim loforðum sem hún gaf í aðdraganda kosninga."

Íbúar við Álafossveg í Mosfellsbæ kölluðu á lögreglu í gærkvöldi eftir að vinnumenn á vegum verktakafyrirtækisins Helgafellsbyggingar ehf. byrjuðu leggja lagnir á svæðinu. Telja íbúarnir að framkvæmdirnar séu í tengslum við umdeildar vegaframkvæmdir við Álafosskvos. Í morgun hófust framkvæmdirnar að nýju og var þá aftur kallað á lögreglu.

Framkvæmdir við Álafossveg voru stöðvaðar í síðastliðnum febrúarmánuði eftir hörð mótmæli íbúa á svæðinu. Telja íbúarnir meðal annars að framkvæmdirnar muni hafa skaðlega áhrif gróður og umhverfi í Álafosskvosinni. Samkomulag náðist um að framkvæmdirnar yrðu settar í umhverfismat og síðan kynntar íbúum. Það mat liggur ekki fyrir og telja íbúarnir að sú lagnavinna sem hófst í gær sé aðeins yfirvarp og að bæjaryfirvöld ætli sér að ýta framkvæmdunum í gegn þvert á gefin loforð.

Sigrún segir klárlega um ólöglegar framkvæmdir að ræða. „Þeir eru í ólöglegum vegaframkvæmdum á svæði sem tilheyrir ekki deiliskipulagi. Þetta eru ekki venjulegar lagnir heldur hrein og klár vegagerð," sagði Sigrún í samtali við Vísi.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar og nýkjörin þingmaður, sagði í samtali við Vísi íbúa fara með rangt mál og ekki sé búið að svíkja nein loforð. Hún segir aðeins verið að ganga frá fráveitumálum úr hverfinu og framkvæmdirnar séu ekki í neinum tengslum við vegaframkvæmdirnar. „Þetta eru ólíkar framkvæmdir. Fráveitan verður að fara þessa leið óháð því hvar brautin kemur til með að liggja. Íbúar fengu tilkynningu vegna þessara framkvæmda í síðustu viku."

Ragnheiður segir ennfremur að verið sé að leggja lokahönd á umhverfisskýrslu vegna framkvæmdanna við Álafossveg. Þá hafi skipulagsnefnd bæjarins fjallað um nýtt deiliskipulag á svæðinu í kringum Álafosskvos í morgun og muni fjalla um það aftur í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×