Carlos Tevez fullkomnaði draumaendasprett West Ham 14. maí 2007 10:00 frábær Carlos Tevez átti mikinn þátt í björgunarafreki West Ham. MYND/Getty
West Ham kórónaði frábæran endasprett sinn í ensku úrvalsdeildinni með því að vinna 1-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester United á Old Trafford. Það var að sjálfsögðu Argentínumaðurinn Carlos Tevez sem skoraði sigurmarkið og fyrir vikið fékk Sheffield United á óhagstæðari markatölu en Wigan. Tevez skoraði 7 mörk fyrir Lundúnaliðið og öll komu þau í tíu síðustu leikjunum. „Það er frábært að koma og vinna Manchester United á Old Trafford, sama hverjar kringumstæðurnar eru. Ég vona að hvorki ég né West Ham fari í gegnum svona tímabil aftur," sagði Alan Curbishley, stjóri West Ham eftir sigurinn. West Ham vann fjóra síðustu leiki sína og fékk alls 21 stig af 27 stigum mögulegum út úr níu síðustu leikjum sínum. Manchester United lét tapið ekki spilla fyrir sigurhátíðinni og þeir Gary Neville og Ryan Giggs lyftu Englandsbikarnum í sameiningu. Bikarinn á loft. Gary Neville og Ryan Giggs tóku báðir við Englandsbikarnum.MYND/Getty Wigan sem var í fallsætinu fyrir umferðina bjargaði sér með því að vinna Sheffield 1-2 á útivelli og senda þar með heimamenn niður í 1. deild. „Þetta var mikið afrek en ég get ekki annað en vorkennt Sheffield United. Það er ekki gaman að fagna fyrir framan lið sem er fallið úr deildinni," sagði Paul Jewell, stjóri Wigan eftir leikinn. Það komu bara þrjú stig í hús hjá efstu fjórum liðunum því Chelsea (1-1 á móti Everton), Liverpool (2-2 á móti Charlton) og Arsenal (0-0 á móti Portsmouth) náðu öll bara einu stigi út úr sínum leikjum. Vítaspyrna Harrys Kewell á lokamínútunni reddaði stiginu fyrir Liverpool sem þar með hélt 3. sætinu sem annars hefði farið til Arsenal.
Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira