Dómarar gagnrýna lögreglu vegna Kragh málsins 19. mars 2009 12:15 Frá dómsuppkvaðningu í dag.
Dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdu í máli Þorsteins Kragh og Jacobs Hinte, gagnrýna vinnubrögð lögreglunnar við rannsókn málsins þar sem Þorsteini Kragh var ítrekað meinað að komast í mikinn fjölda skjala sem vörðuðu rannsókn málsins. Þorsteinn sat þá í gæsluvarðhaldi og óskaði eftir að nálgast rannsóknarskjölin, en var ítrekað meinað um það eða fékk þau of seint í hendurnar. Þorsteinn kærði málið á sínum tíma og krafðist frávísunar vegna þessa. Ekki var fallist á það og málinu framhaldið. Í gagnrýni á vinnbrögð lögreglunnar segir í dómsskjali: „Viðhlítandi skýring hefur ekki komið fram hverju þetta sætir. Ber að átelja þessi vinnubrögð lögreglu [...]."
Tengdar fréttir Þorsteinn Kragh í níu ára fangelsi Þorsteinn Kragh var í dag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að smygla til landsins tæpum 200 kílóum af hassi og hálfu öðru kílói af kókaíni. Jacob van Hinte, hollenskur samstarfsmaður Þorsteins var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi en dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan ellefu í morgun. Þorsteinn mætti ekki við dómsuppsögu málsins. 19. mars 2009 11:06 Frávísunarkröfu Þorsteins Kragh hafnað Kröfu Þorsteins Kragh um frávísun í máli hans var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Þorsteinn er grunaður um aðild að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum en Hollendingurinn Jacob Van Hinte var handtekinn um borð í Norrænu með um 190 kíló af hassi, eitt og hálft kíló af maríjúana og eitt kíló af kókaíni í bíl sínum. Þorsteinn var handtekinn um mánuði síðar og hefur setið í gæsluvarðhaldi í um hálft ár. 6. febrúar 2009 11:02 Aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh í dag Aðalmeðferð er í dag í máli Þorsteins Kragh og Jakobs Van Hinte í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru sakaðir um að standa að einu stærsta smygli á eiturlyfjum til landsins í sögunni en Van Hinte var stöðvaður í ferjunni Norrænu í júní 2008 með um 190 kíló af hassi, eitt kíló af kókaíni og eitt og hálft kíló af maríjúana, vandlega falið í bíl sínum. 23. febrúar 2009 09:07 Fréttaskýring: Hver lætur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum? Ákæruvaldið fer fram á 10 ára fangelsisdóm hið minnsta yfir Þorsteini Kragh og Jacobi Van Hinte fyrir að skipuleggja og flytja inn tæplega 200 kíló af kannabisefnum og tæpt 1 ½ kíló af kókaíni. Verjandi Þorsteins fer fram á að hann verði sýknaður en verjandi hollendingsins telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár hið mesta. Hann segir ennfremur að 10 ára fangelsisdómur yfir rúmlega sjötugum manni sé í raun lífstíðardómur. Vísir fylgdist með aðalmeðferð í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 24. febrúar 2009 15:10 Útskýrir milljónir með skattsvikum og fölsuðum miðum Í morgun fór fram aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh og hollendingsins Jacob Van Hinte sem ákærðir eru fyrir fíkniefnainnflutning með Norrænu. Í húsbíl sem Jacob kom á hingað til lands fundust um 200 kg af kannabisefnum auk 1 ½ kg af kókaíni. Hollendingurinn bendlaði Þorstein við málið í upphafi en eftir að þeir hittust á Litla-Hrauni dró hann framburð sinn til baka og segir Þorstein ekkert hafa komið nálægt málinu. Fram kom að tæpar 80 milljónir voru inni á bankareikningum Þorsteins sem hann sagði tilkomnar vegna skota undan skatti og í tengslum við miða sem hann hafi falsað á tónleika sem hann hafi haldið í gegnum tíðina. 23. febrúar 2009 12:35 Átti að fá 40 þúsund evrur fyrir smyglið Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hafa átt að fá 40.000 evrur fyrir að koma húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hingað til lands. Hann er ákærður, ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að hafa ætlað að smygla nær 200 kílóum af kannabisefnum og einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins í húsbílnum. 24. febrúar 2009 04:00 Kragh fái tíu ára dóm hið minnsta Ríkissaksóknari fer fram á að Þorsteinn Kragh og Jakob Van Hinte verði dæmdir í tíu ára fangelsi að lágmarki fyrir aðild sína að stórfelldum fíkniefnainnflutningi með Norrænu í sumar. Aðalmeðferð í málinu var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sækjandi byggir kröfu sína um svo þunga dóma á því mikla magni sem mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa reynt að smygla til landsins en alls var um að ræða tæp 200 kíló af fíkniefnum. Í máli sækjanda í morgun kom meðal annars fram að smyglið hafi verið gríðarlega vel skipulagt en til dæmis voru efnin vel falin í sérútbúnum húsbíl. 24. febrúar 2009 11:16 Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira
Þorsteinn Kragh í níu ára fangelsi Þorsteinn Kragh var í dag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að smygla til landsins tæpum 200 kílóum af hassi og hálfu öðru kílói af kókaíni. Jacob van Hinte, hollenskur samstarfsmaður Þorsteins var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi en dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan ellefu í morgun. Þorsteinn mætti ekki við dómsuppsögu málsins. 19. mars 2009 11:06
Frávísunarkröfu Þorsteins Kragh hafnað Kröfu Þorsteins Kragh um frávísun í máli hans var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Þorsteinn er grunaður um aðild að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum en Hollendingurinn Jacob Van Hinte var handtekinn um borð í Norrænu með um 190 kíló af hassi, eitt og hálft kíló af maríjúana og eitt kíló af kókaíni í bíl sínum. Þorsteinn var handtekinn um mánuði síðar og hefur setið í gæsluvarðhaldi í um hálft ár. 6. febrúar 2009 11:02
Aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh í dag Aðalmeðferð er í dag í máli Þorsteins Kragh og Jakobs Van Hinte í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru sakaðir um að standa að einu stærsta smygli á eiturlyfjum til landsins í sögunni en Van Hinte var stöðvaður í ferjunni Norrænu í júní 2008 með um 190 kíló af hassi, eitt kíló af kókaíni og eitt og hálft kíló af maríjúana, vandlega falið í bíl sínum. 23. febrúar 2009 09:07
Fréttaskýring: Hver lætur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum? Ákæruvaldið fer fram á 10 ára fangelsisdóm hið minnsta yfir Þorsteini Kragh og Jacobi Van Hinte fyrir að skipuleggja og flytja inn tæplega 200 kíló af kannabisefnum og tæpt 1 ½ kíló af kókaíni. Verjandi Þorsteins fer fram á að hann verði sýknaður en verjandi hollendingsins telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár hið mesta. Hann segir ennfremur að 10 ára fangelsisdómur yfir rúmlega sjötugum manni sé í raun lífstíðardómur. Vísir fylgdist með aðalmeðferð í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 24. febrúar 2009 15:10
Útskýrir milljónir með skattsvikum og fölsuðum miðum Í morgun fór fram aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh og hollendingsins Jacob Van Hinte sem ákærðir eru fyrir fíkniefnainnflutning með Norrænu. Í húsbíl sem Jacob kom á hingað til lands fundust um 200 kg af kannabisefnum auk 1 ½ kg af kókaíni. Hollendingurinn bendlaði Þorstein við málið í upphafi en eftir að þeir hittust á Litla-Hrauni dró hann framburð sinn til baka og segir Þorstein ekkert hafa komið nálægt málinu. Fram kom að tæpar 80 milljónir voru inni á bankareikningum Þorsteins sem hann sagði tilkomnar vegna skota undan skatti og í tengslum við miða sem hann hafi falsað á tónleika sem hann hafi haldið í gegnum tíðina. 23. febrúar 2009 12:35
Átti að fá 40 þúsund evrur fyrir smyglið Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hafa átt að fá 40.000 evrur fyrir að koma húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hingað til lands. Hann er ákærður, ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að hafa ætlað að smygla nær 200 kílóum af kannabisefnum og einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins í húsbílnum. 24. febrúar 2009 04:00
Kragh fái tíu ára dóm hið minnsta Ríkissaksóknari fer fram á að Þorsteinn Kragh og Jakob Van Hinte verði dæmdir í tíu ára fangelsi að lágmarki fyrir aðild sína að stórfelldum fíkniefnainnflutningi með Norrænu í sumar. Aðalmeðferð í málinu var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sækjandi byggir kröfu sína um svo þunga dóma á því mikla magni sem mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa reynt að smygla til landsins en alls var um að ræða tæp 200 kíló af fíkniefnum. Í máli sækjanda í morgun kom meðal annars fram að smyglið hafi verið gríðarlega vel skipulagt en til dæmis voru efnin vel falin í sérútbúnum húsbíl. 24. febrúar 2009 11:16