Guif óvænt í úrslitin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. maí 2009 09:19 Hreiðar Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu.
Íslendingaliðið Guif tryggði sér óvænt sæti í úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með sigri á Sävehof í oddaleik í undanúrslitum. Sävehof er deildarmeistari og mátti velja sér andstæðing í undanúrslitunum. Oddaleikurinn fór því fram á heimavelli liðsins en á endanum var það Guif sem fagnaði sigri, 22-20, eftir að hafa verið með þriggja marka forystu í hálfleik, 14-11. Haukur Andrésson skoraði eitt mark fyrir Guif en bróðir hans, Kristján Andrésson, er þjálfari liðsins. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Guif að liðið kemst í úrslitin um sænska meistaratitilinn í handbolta. Hreiðar Guðmundsson landsliðsmarkvörður er á mála hjá Sävehof en sat allan leikinn á varamannabekknum í gær. Þetta var hans síðasti leikur með liðinu þar sem hann hefur samið við þýska B-deildarliðið Emsdetten. Hin undanúrslitaviðureignin réðst einnig í oddaleik. Í honum vann Alingsås öruggan níu marka sigur á Hammarby, 35-26. Það verða því Alingsås og Guif sem mætast í úrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta en leikurinn fer fram í Globen-höllinni í Stokkhólmi á laugardagskvöldið.
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira