Ísland í sterkum riðli í undankeppni EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2009 12:15 Íslenska landsliðið í leik gegn Noregi í haust. Nordic Photos / AFP
Í dag var dregið í riðla fyrir undankeppni EM kvenna í handbolta sem fer fram í Danmörku og Noregi í desember á næsta ári. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki í drættinum og lenti í riðli með Frakklandi, Austurríki og Bretlandi eða Finnlandi. Bretland og Finnland munu mætast í umspili í september næstkomandi um hvort liðið kemst í sjálfa undankeppnina. Riðlakeppnin sjálf hefst svo um miðjan október og lýkur í maí á næsta ári. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í sjálfa úrslitakeppnina ásamt gestgjöfunum, Danmörku og Noregi. Þetta er nýtt fyrirkomulag á undankeppni stórmóts í handbolta kvenna en er í samræmi við fyrirkomulagið á undankeppni EM 2010 í handbolta karla. Frakkar urðu heimsmeistarar árið 2003 og hafa tvívegis hlotið brons á EM - 2002 og 2006. Frakkar komust í úrslitakeppni EM í fyrra en töpuðu nokkuð óvænt öllum sínum leikjum í riðlakeppninni. Þeir urðu í fimmta sæti á Ólympíuleikunum í Peking í fyrra. Austurríki hefur verið meðal þátttökuþjóða í öllum úrslitakeppnum EM og HM síðan 1982. Hins vegar hefur liðinu ekki tekist að komst inn á síðustu tvenna Ólympíuleika. Liðið varð í sextánda sæti á síðasta HM, árið 2007, og varð svo í ellefta sæti á EM í fyrra. Austurríki hefur tvívegis komist á verðlaunapall á stórmótum - á HM 1999 og EM 1996.Leikið verður í fimm borgum í Noregi og Danmörku. Riðill Danmerkur verður leikinn í Álaborg og annar riðill í Randers í Danmörku. Noregsriðillinn verður leikinn í Lillehammer og annar í Larvik í Noregi. Útsláttarkeppnin og úrslitaviðureignirnar fara svo fram í Herning í Danmörku.
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira