Erlent

Reese Witherspoon trúlofuð

Reese Witherspoon
Reese Witherspoon
Leikkonan Reese Witherspoon og kærasti hennar til eins árs, umboðsmaðurinn Jim Toth, trúlofuðu sig um jólin. Búist er við því að þau gangi í það heilaga strax á næsta ári.

Leikkonan á tvö börn af fyrra hjónabandi sínu með leikaranum Ryan Phillippe. Dóttirin Ava er ellefu ára og sonurinn Deacon er orðinn sjö ára. Witherspoon og Phillippe voru gift í sjö ár. Eftir að þau skildu árið 2006 var hún um skeið með leikaranum Jake Gyllenhaal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×