Frumtak fjárfestir í Gogogic 29. mars 2010 15:01 Frá undirskrift samningsins. Efri röð frá vinstri: Ólafur Andri Ragnarsson, Íris Kristín Andrésdóttir og Svana Gunnarsdóttir Neðri röð frá vinstri: Sigurður Eggert Gunnarsson, Jónas B.Antonsson, Eggert Claessen, Helga Valfells og Guðmundur Bjargmundsson
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Gogogic ehf sem var stofnað árið 2006 til að þróa tölvuleiki. Gogogic sérhæfir sig í frumlegri leikjahönnun, gerð smærri tölvuleikja og framleiðslu margmiðlunarefnis fyrir vefinn. Einnig sinnir fyrirtækið hugmyndasmíði og markaðsmálum fyrir viðskiptavini sína. Kaupin nema alls 150 milljónum króna. „Gogogic er í hópi stærstu leikjafyrirtækja á Íslandi og því áhugaverður fjárfestingakostur fyrir Frumtak" segir dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Gogogic hefur náð frábærum árangri í framleiðslu og hönnun tölvuleikja ásamt því að vera í fararbroddi nýrra samtaka fyrirtækja í íslenskum leikjaiðnaði. Við væntum mikils af fyrirtækinu og það verður sérstaklega áhugavert að sjá það ná árangri í að selja leiki sína en þeir hafa hlotið góða dóma og viðurkenningar. Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið hefur fengið með aðkomu Frumtaks". „Það er ljóst að aðkoma Frumtaks mun gera félaginu kleift að láta reyna almennilega á vörur sínar á markaði, byggja upp þær pípur sem þarf til erlendrar markaðssetningar og koma leikjum fyrirtækisins almennilega á framfæri. Einnig er þetta stuðningur við frekari leikjaþróun og þá felst í því töluverð viðurkenning, að fá Frumtak að borðinu á þessum tíma ", sagði Jónas Antonsson, framkvæmdastjóri Gogogic. Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.
Mest lesið Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Spá enn einum fundinum án breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira