Áramótadjammið kostar sitt 30. desember 2010 09:30 Það getur kostað stelpurnar um þrjátíu þúsund krónur að skella sér út á lífið á gamlárskvöld. Strákarnir sleppa að öllum líkindum betur en þurfa þó að punga út ófáum þúsundköllunum líka. nordicphotos/getty
Áramótadjammið er ómissandi hjá mörgum skemmtanaglöðum Íslendingum. En það kostar sitt að skemmta sér á þessu síðasta kvöldi ársins og sumir eiga væntanlega eftir að vakna timbraðir á nýju ári, töluvert blankari en þegar þeir skelltu sér út kvöldið áður. Fréttablaðið fór á stúfana og athugaði hvað áramótadjammið kostar. Það er að sjálfsögðu misjafnt hversu öfgakennt áramótadjammið getur orðið en flestar stelpur fjárfesta í kjól, hvort sem það er fyrir jólin eða áramótin en strákar endurnýta oftast jakkafötin sem þeir eiga fyrir. Langflestir fá sér í aðra tána og er þá misjafnt hvað fólk fær sér, strákarnir eru kannski meira fyrir bjórinn á meðan stelpurnar fá sér mojito eða annan sambærilegan drykk. Að taka leigubíl virðist óumflýjanlegt þar sem flestir hafa skálað þegar nýja árið hringir inn, en stórhátíðargjald er á leigubílum á gamlárskvöld og því 35 prósenta hærra gjald en ella. Lauslegir útreikningar Fréttablaðsins benda til þess að áramótadjammið geti kostað karlpeninginn eitthvað í kringum fjórtán þúsund krónur. Sambærilegir útreikningar fyrir stelpurnar hljóða hins vegar upp á um þrjátíu þúsund krónur. Stelpurnar Áramótakjóll: 15.000 kr. Freyðivínsflaska: 1.600 kr. Tveir drykkir í bænum: 3.600 kr. Leigubíll í bæinn: 4.000 kr. Tónleikamiði: 2.000 kr. Leigubíll heim: 4.000 kr. Samtals: 30.200 kr. Strákarnir Kippa af bjór: 2.100 kr. Tveir bjórar í bænum: 1.800 kr. Leigubíll í bæinn: 4.000 kr. Tónleikamiði: 2.000 kr. Leigubíll heim: 4.000 kr. Samtals: 13.900 kr.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Lögreglan þarf að ná tali af tveimur mönnum Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Lögreglan þarf að ná tali af tveimur mönnum Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Sjá meira