Innlent

Stórhert eftirlit verður með ávísun ofvirknilyfja

Geir Gunnlaugsson
Geir Gunnlaugsson
Guðbjartur Hannes­son heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur vinnuhóps um stórhert eftirlit með ávísun ofvirknilyfja til að sporna við misnotkun þeirra. Lyf eins og rítalín og concerta, sem flokkast sem ávana- og fíkniefni, eru fyrst og fremst ætluð börnum en 50 prósenta aukning á notkun þeirra á síðustu fjórum árum skýrist af ávísunum til fullorðinna.

Frá áramótum verður frumgreining á ofvirkni og athyglisbresti (ADHD) hjá fullorðnum undir yfir­umsjón geðsviðs Landspítala, og því aðeins í höndum sérfræðinga í geðlækningum. Hert verður á tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsmanna vegna gruns um misnotkun lyfjanna til landlæknis. Þá verða teknar upp breyttar reglur um lyfjaskírteini sem hafa það að markmiði að aðeins einn sérfræðingur, auk heimilislæknis, beri ábyrgð á ávísun lyfjanna fyrir hvern einstakling. Með þessu er reynt að fyrirbyggja að einstaklingur geti fengið ávísað lyfjum frá mörgum læknum.

Geir Gunnlaugsson landlæknir segir takmarkið vera að stöðva þá miklu aukningu á notkun lyfjanna sem raun ber vitni. Hvort hægt verði að draga úr henni verði að koma í ljós en ekki var skilgreint í vinnu nefndarinnar hvað sé eðlileg notkun í íslensku samfélagi.

Dagskammtar á hverja þúsund íbúa voru 7,53 árið 2004 en 12,70 í fyrra. Samsvarandi tölur frá Danmörku árið 2008 eru 3,55 á hverja þúsund íbúa og 2,51 í Svíþjóð.

Spurður hvort svo harðar takmarkanir á ávísun lyfjanna bendi ekki til þess að kerfið hafi verið meingallað hingað til segir Geir að þróunin hafi verið mjög hröð og erfitt að sjá hana fyrir. „Já, eigum við ekki að segja að við séum að reyna að gera betur í dag en í gær. Misnotkunin er stórt áhyggjuefni og við erum að reyna að stemma stigu við henni með þessum aðgerðum.“

Rítalín og skyld lyf voru þau kostnaðarsömustu hjá Sjúkratryggingum Íslands árið 2009 eða 463 milljónir króna. Kostnaður sjúkratrygginga vegna fullorðinna var um 43 prósent eða um 200 milljónir.

svavar@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×