Nýstofnuðum fyrirtækjum fækkað um helming frá 2007 Hafsteinn Hauksson skrifar 29. desember 2010 19:00
Nýstofnuðum fyrirtækjum í landinu hefur fækkað um meira en helming frá góðærisárinu 2007. Samlags- og sameignarfélögum hefur hins vegar fjölgað mikið á árinu vegna breytinga á skattkerfinu. Aðeins 1532 hlutafélög voru stofnuð í ár, en nánast öll þeirra eru einkahlutafélög. Það er talsverð fækkun frá síðustu tveim árum, en bæði 2008 og 2009 voru stofnuð fleiri en 2500 félög. Munurinn er sláandi ef litið er til góðærisársins 2007, en þá voru fleiri en 3700 fyrirtæki skráð í hlutafélagaskrá. Samdrátturinn nemur því tæplega 60 prósent á þremur árum. Þetta kemur fram í tölum sem CreditInfo hefur tekið saman fyrir fréttastofu, en þessi mikli munur skýrist ekki síst af því að eignarhaldsfélög og sambærileg fyrirtæki eru stofnuð í mun minna mæli en áður. Í ár var 131 slíkt félag stofnað, en 2007 voru þau meira en fimm sinnum fleiri. Þá eru stofnuð færri félög í kringum byggingarstarfsemi nú en fyrir hrun, en þau voru 116 talsins í ár, samanborið við tæplega 540 félög árið 2007. Athygli vekur að þrátt fyrir þennan samdrátt í stofnun nýrra hlutafélaga, voru miklu fleiri samlags- og sameignarfélög stofnuð í ár en fyrir hrun. Fjöldi þeirra hefur nærri þrefaldast síðan 2007. Ástæðan er líklegast sú að eftir breytingar á skattkerfinu á síðasta ári er hluti af arði einkahlutafélaga undir ákveðnum kringumstæðum skattlagður eins og um launagreiðslur sé að ræða. Það gildir hins vegar ekki um samlags- og sameignarfélög, svo mögulegt er að greiða lægri skatta af tekjum með því félagaformi. Þetta virðast frumkvöðlar hafa nýtt sér svo um munar, en ekki var tekið á þessu misræmi fyrir fjárlög næsta árs.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Sjá meira