Haukar töpuðu með tveimur mörkum á móti Grosswallstadt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2010 19:36 Freyr Brynjarsson skoraði 6 mörk í kvöld.
Haukar töpuðu með tveggja marka mun, 26-24, í fyrri leiknum á móti Grosswallstadt í 3. umferð EHF-bikarsins í handbolta en leikið var í Þýskalandi í kvöld. Haukarnir eru því í ágætum málum fyrir seinni leikinn á Ásvöllum um næstu helgi. Sverre Jakobsson og félagar í Grosswallstadt máttu þakka fyrir sigurinn því Hafnfirðingar spiluðu mjög vel sérstaklega framan af leik. Haukarnir voru frábærir fyrstu 24 mínútur leiksins og voru í kjölfarið komnir fimm mörkum yfir, 11-6. Grosswallstadt náði að minnka muninn í eitt mark fyrir hálfleik en Haukaliðið var 13-12 yfir í leikhléi. Grosswallstadt skoraði þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks og komst yfir í 15-13 en liðið var þá búið að skora 9 mörk gegn aðeins tveimur frá Haukum á aðeins tólf mínútna kafla. Haukarnir gáfust ekki upp og náðu aftur frumkvæðinu. Lokamínúturnar í leiknum voru síðan æsispennandi. Stefan Rafn Sigurmannsson kom Haukum yfir í 21-22 en Grosswallstadt svaraði með tveimur mörkum og komst í 23-22. Guðmundur Árni Ólafsson jafnaði metin í 23-23 en aftur komst Grosswallstadt yfir í 24-23. Mattias Andersson varði vítakast Guðmundar Árna í næstu sókn og Þjóðverjarnir juku muninn í tvö mörk úr víti hinum megin. Guðmundur Árni minnkaði muninn í 25-24 en Oliver Köhrmann tryggði Grosswallstadt tveggja marka sigur í síðustu sókn leiksins.TV Grosswallstadt-Haukar 26-24 (12-13)Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 6, Guðmundur Árni Ólafsson 6/3, Heimir Óli Heimisson 5, Björgvin Hólmgeirsson 2, Þórður Rafn Guðmundsson 2, Tjörvi Þorgeirsson 1, Stefán Rafn Sigurmannsson 1, Einar Örn Jonsson 1. Birkir Ívar Guðmunsson varði 8 skot og Aron Rafn Eðvarðsson varði 6 skot.
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Leik lokið: Fram - Haukar 37-34 | Særðir gestirnir komust ekki heilir úr Úlfarsárdal Handbolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Í beinni: Fram - Haukar | Særðir gestir í Úlfarsárdal Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Sjá meira