Rannsóknarnefnd stofnuð í Reykjavík Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. janúar 2011 17:39 Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti tillöguna í dag. Mynd/ Vilhelm.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að skipa nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar með sama hætti og gert var af rannsóknarnefnd Alþingis síðastliðið vor. Nefndinni ber meðal annars að skoða málsmeðferð, gegnsæi, verkaskiptingu stjórnmála og stjórnsýslu, hæfi og skipan í nefndir og stjórnir, skráningu hagsmunatengsla og siðareglur fyrir stjórnsýslu og stjórnkerfi. Samkvæmt tillögunni, sem borgarstjórn samþykkti í dag, á sérstaklega að fjalla um þau svið stjórnsýslu Reykjavíkurborgar sem varða fjárhagslega hagsmuni þar sem skapast getur hætta á hagsmunaárekstrum, svo sem vegna lóðaúthlutana, lóðaskila, styrkveitinga, þjónustu- og verksamninga, innkaupa og eignasölu. Samkvæmt tillögunni fær nefndin aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum Reykjavíkurborgar, þar með talið trúnaðargögnum og er heimilt að kalla fyrir sig aðila innan sem og utan stjórnkerfis borgarinnar. Nefndarmenn geta óskað eftir frekari athugunum á sviðum, stofnunum, fyrirtækjum eða byggðarsamlögum sem Reykjavíkurborg á aðild að eða hlut í ef tilefni er til. Lokaskýrsla nefndarinnar á að liggja fyrir 15. september 2011.Þorleifur segir tillöguna útþynnta Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, segir að tillagan sem nú hafi verið samþykkt sé útþynning fyrri samþykktar sem gerð var í maí síðastliðinn, þar sem þá hafi afdráttarlaust kveðið á um að aðalverkefni nefndarinnar yrði að kanna aðkomu stjórnmálamanna að fjárhagslegum ákvörðunum á undanförnum árum og hvort gætt hafi verið eðlilegrar hlutlægni og heiðarleika í þeim afskiptum. Í þeirri tillögu hafi verið lagt til að kannað yrði hvort verktakar, bankar og fyrirtækjasamsteypur hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu og hvort fjársterkir aðilar hafa beint eða óbeint haft áhrif á pólitískar ákvarðanir og stjórnsýslu borgarinnar og þannig hagnast á tengslum við hana. Jafnframt hafi átt að kanna hvort einstakir embættismenn, borgarfulltrúar eða frambjóðendur til borgarstjórnar hafi hagnýtt sér persónulega eða í þágu síns flokks tengsl við fjársterka aðila sem hafa átt í viðskiptum við borgina.
Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Sjá meira