Jakob: Þetta kitlar egóið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. maí 2011 20:33 Mynd/Valli
Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik þegar að lið hans, Sundsvall Dragons, varð sænskur meistari í körfubolta eftir sigur á Norrköping Dolphins, í oddaleik um titilinn. Jakob fór á kostum og skoraði 31 stig, þar aff 26 í fyrri hálfleik þar sem hann fór á kostum. Sundsvall náði 22 stiga forystu eftir fyrri hálfleikinn og Norrköping náði aldrei að ógna henni verulega í þeim síðari. Jakob var einnig hetja liðsins í síðasta leik liðanna þegar að Norrköping var aðeins tveimur sekúndum frá titlinum. Þá setti hann niður þriggja stiga skot, tryggði sínum mönnum framlengingu þar sem Sundsvall vann svo sigur. „Ég neita því ekkert að þetta kitlar egóið,“ sagði hann léttur í dúr í viðtali við Vísi í kvöld. „Sjálfstraustið var gott og þannig var það hjá öllu liðinu. Síðasti leikur hjálpaði einnig mikið til og hafði góð áhrif á þennan leik. Við mættum til leiks með mikið sjálfstraust og það jókst bara eftir því sem leið á leikinn.“ Hann segir að leikmenn hafi verið meðvitaðir um að halda yfirvegun sinni þrátt fyrir góða stöðu í hálfleik. „Það er erfitt að spila svona allan leikinn. Við töluðum um það. Við höfum áður haft svona mikla forystu á móti þeim en tapað henni niður og næstum tapað leiknum. við vissum að þeir myndu reyna að koma til baka.“ „En við stóðum okkur vel í að halda aftur af þeim. Í hvert sinn þegar þeir komu með smá áhlaup hittum við úr stórum skotum og settum helst þrist í andlitið á þeim. Við náðum því að stjórna seinni hálfleiknum eins og við gerðum í þeim fyrri.“ Hann segir það ótrúlegt að hafa dottið í svona mikið stuð eins og hann gerði í dag. „Eftir að ég hitti úr fyrstu tveimur skotunum þá leið mér rosalega vel. Því hélt ég bara áfram - að sjálfsögðu.“ Nánar verður rætt við Jakob og liðsfélaga hans, Hlyn Bæringsson, í Fréttablaðinu á morgun.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira