Fékk 900 tölvupósta 1. janúar 2011 16:45 Júlíus Már missti allar hænur sínar þegar útihúsin við bæinn Tjörn á Vatnsnesi brunnu til kaldakola 28. mars síðastliðinn.
Júlíus Már Baldursson landnámshænuræktandi missti allar hænur sínar þegar útihúsin við bæinn Tjörn á Vatnsnesi brunnu til kaldakola 28. mars síðastliðinn. „Ég er bara í áfalli og enn að átta mig á þessu," sagði Júlíus í samtali við Fréttablaðið en í húsunum voru 250 landnámshænur, fjórir heimiliskettir og um þúsund egg með lifandi ungum, sem áttu að klekjast út á næstu fjórum dögum. „Ég ákvað strax á mánudeginum eftir brunann að halda áfram," sagði Júlíus þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans í vikunni. „Ég átti tíu hana sem björguðust og eggjunum sem ég hafði tekið frá daginn fyrir brunann kom ég til góðra vina í útungun. Svo fékk ég líka egg frá bændum sem hafa fengið hænur frá mér þannig að ég er kominn með minn stofn aftur." Í júlí var Júlíus kominn með fugla og þeir fyrstu fóru að verpa í nóvember, markmið hans var alltaf að ná sömu stofnstærð í mars og hann hafði verið með, 250 fugla. „Ég ætlaði að hefja sölu á eggjum þá en vandamálið er að það er pattstaða hjá mér út af útihúsum og aðstöðu. Ég gerði bráðbirgðaaðstöðu í fjárhúsinu fyrir hænurnar en hún dugar ekki til frambúðar. Tjörn er ríkisjörð og framkvæmdir eru í höndum landbúnaðarráðuneytisins, og ég veit ekki hvort fjárhúsin verða tekin í gegn eða byggt nýtt. Ég er í raun að verða tilbúin með stofninn en vantar aðstöðuna." Stór hluti vandans liggur að sögn Júlíusar í því að hann hefur ekki fengið tjónið bætt. „Tryggingafélagið, TM, hefur ekki haft samband við mig síðan þeir komu hingað daginn eftir brunann, málið er að á meðan ég fæ ekki tryggingabæturnar get ég ekkert gert, ég er bara blankur." Júlíus segir brunann hafa verið mikið áfall. „Það var náttúrlega mikið sjokk og áfall að vakna við svona lagað og líðanin er eins og að vera í rússibana. Fyrstu dagana eftir brunann voru dýrin líka úti um allt og ömurlegt að þurfa að horfa upp á það. En þegar rannsókn var lokið tók hreinsunin skamman tíma." Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að kviknað hafði í út frá rafmagni. Júlíus segir þann hlýhug sem hann fann í kjölfar eldsvoðans hafa styrkt sig til dáða. „Ég fékk 900 tölvupósta í kjölfar eldsvoðans bæði frá fólki sem hafði keypt af mér og fólki sem ég þekkti ekki neitt," segir Júlíus sem bíður með óþreyju eftir að fá lausn sinna mála, til þess að hann geti byrjað á nýjan leik að selja landnámshænuhegg. „Það hefur verið hefur verið mitt helsta áhugamál í þrjátíu ár að vernda stofninn og ég hyggst halda því áfram." - sbt
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Innlent Fleiri fréttir Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjá meira