Spánverjar komnir í undanúrslitin á EM í körfu - unnu Slóvena létt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. september 2011 16:47 Juan Carlos Navarro var frábær í dag. Mynd/AFP
Evrópumeistarar Spánverja urðu í dag fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum á EM í körfubolta í Litháen eftir sannfærandi 22 stiga sigur á Slóvenum, 86-64, í átta liða úrslitunum. Spánverjar mæta sigurvegaranum úr leik Litháen og Makedóníu sem spila sinn leik seinna í kvöld. Fyrirliðinn Juan Carlos Navarro átti frábæran leik hjá Spáni og skoraði 26 stig á 26 mínútum þar af komu 17 þeirra í þriðja leikhlutanum þegar spænska liðið gerði út um leikinn. Navorro hitti úr 11 af 16 skotum sínum í leiknum. Pau Gasol var með 19 stig og 16 fráköst og þeir José Calderón og Serge Ibaka skoruðu báðir níu stig. Goran Dragic var stigahæstur hjá Slóveníu með 14 stig en Mirza Begic skoraði 10 stig. Slóvenar náðu fjórða sætinu á síðasta EM 2009 en náðu ekki alveg að fylgja þeim árangri eftir nú. Slóvenar byrjuðu þó leikinn vel og sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 23-16. Spánverjar fóru þá í gang, unnu annan leikhlutann 19-8 og voru fimm stigum yfir í hálfleik, 35-31. Spænska liðið fór síðan á kostum í þriðja leikhlutanum sem liðið vann 36-14 og var því komið með 26 stiga forystu, 71-45, fyrir lokaleikhlutann sem var því aðeins formsatriði. Slóvenar skoruðu níu fyrstu stigin í fjórða leikhluta og náðu muninum niður í 17 stig en nær komust þeir ekki og sigur Spánverja var aldrei í hættu.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira