Innlent

Árásarmannsins enn leitað

Mynd/Pjetur
Karlmaður á fertugsaldri liggur þungt haldinn á gjörgæslu Landspítalans með alvarlega áverka á höfði eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsrás í miðborg Reykjavíkur í morgun. Að sögn vakthafandi læknis er maðurinn þó ekki í öndunarvél. Maðurinn lenti í átökum við annan karlmann í Hafnarstræti um hálf átta leytið í morgun sem lauk með því að sparkað var í höfuð mannsins.

Árásarmaðurinn er enn ófundinn en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur hún lýsingu á manninum undir höndum og vinnur nú að því að hafa uppi á honum.


Tengdar fréttir

Á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás

Karlmaður liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsrás í miðborg Reykjavíkur í morgun. Maðurinn sem er fæddur árið 1976 lenti í átökum við annan karlmenn í Hafnarstræti um hálf átta leytið. Átökunum lauk með því að sparkað var í höfuð mannsins með þeim afleiðingum að hann liggur nú sem fyrr segir á gjörgæsludeild. Árásarmaðurinn er ófundinn en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur hún lýsingu á manninum undir höndum og vinnur nú að því að hafa uppi á honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×