Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Breiðablik 3-0 Stefán Hirst Friðriksson skrifar 20. maí 2012 19:15 Mynd/Stefán
FH vann góðan sigur á Breiðablik, 3-0, á Kaplakrikavelli í kvöld en Fimleikafélagið hefur byrjað tímabilið nokkuð sannfærandi og hafa aðeins fengið á sig eitt mark í upphafi móts. Björn Daníel Sverrisson kom FH yfir í fyrri hálfleik en það var Ólafur Páll Snorrason sem setti tvö í þeim síðari. FH-ingar eru með 10 stig í öðru sæti deildarinnar en Blikar eru aðeins með fjögur stig. Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og voru gestirnir úr Kópavoginum skeinuhættir á upphafsmínútunum. Heimamenn náðu þó fljótlega fullri stjórn á leiknum og náðu þeir forystunni á 25. mínútu. Þá var boltanum spyrnt í hönd leikmanns Breiðablik, innan vítateigs og dæmdi dómarinn umsvifalaust vítaspyrnu. Björn Daníel Sverrisson sýndi fádæma öryggi á punktinum og sendi Sigmar í vitlaust horn. Blikar voru þó nálægt því að jafna leikinn undir lok fyrri hálfleiksins en Elfar Árni Aðalsteinsson setti boltann rétt framhjá markinu úr ágætu færi. FH-ingar því með 1-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn með látum og voru þeir búnir að gera tvö mörk þegar rúmlega tíu mínútur voru búnar af hálfleiknum. Í báðum tilfellum var að verki Ólafur Páll Snorrason, eftir góðar sendingar frá Atla Guðnasyni. Heimamenn hefðu getað bætt við mörkum í kjölfarið en Sigmar varði glæsilega í tvígang frá Atla Viðari Björnssyni úr dauðafærum. Emil Pálsson var svo nálægt því að skora glæsilegt mark en þrumuskot hans endaði í slánni og heimamenn gjörsamlega að ganga frá Blikum á þessum tímapunkti. Það fjaraði undan leiknum í kjölfarið og unnu heimamenn í FH að lokum, öruggan, 3-0 sigur. Sigur heimamanna var síst of stór en Blikar geta þakkað Sigmari Inga Sigurðarsyni, markverði sínum fyrir góða frammistöðu, en hann átti nokkrar frábærar markvörslur í leiknum. Frammistaða leikmanna Breiðabliks hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þjálfara liðsins, en hún var vægast sagt hrikaleg slök og þá sérstaklega í síðari hálfleiknum, sem var algjör eign heimamanna.Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og voru gestirnir úr Kópavoginum skeinuhættir á upphafsmínútunum. Heimamenn náðu þó fljótlega fullri stjórn á leiknum og náðu þeir forystunni á 25. mínútu. Þá var boltanum spyrnt í hönd leikmanns Breiðabliks, innan vítateigs og dæmdi dómarinn umsvifalaust vítaspyrnu. Björn Daníel Sverrisson sýndi fádæma öryggi á punktinum og sendi Sigmar í vitlaust horn. Blikar voru þó nálægt því að jafna leikinn undir lok fyrri hálfleiksins en Elfar Árni Aðalsteinsson setti boltann rétt framhjá markinu úr ágætu færi. FH-ingar því með 1-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn með látum og voru þeir búnir að gera tvö mörk þegar rúmlega tíu mínútur voru búnar af hálfleiknum. Í báðum tilfellum var að verki Ólafur Páll Snorrason, eftir góðar sendingar frá Atla Guðnasyni. Heimamenn hefðu getað bætt við mörkum í kjölfarið en Sigmar varði glæsilega í tvígang frá Atla Viðar Björnssyni úr dauðafærum. Emil Pálsson var svo nálægt því að skora glæsilegt mark en þrumuskot hans endaði í slánni og heimamenn gjörsamlega að ganga frá Blikum á þessum tímapunkti. Það fjaraði undan leiknum í kjölfarið og unnu heimamenn í FH að lokum, öruggan, 3-0 sigur. Sigur heimamanna var síst of stór en Blikar geta þakkað Sigmari Inga Sigurðarsyni, markverði sínum fyrir, en hann átti nokkrar frábærar markvörslur í leiknum. Frammistaða leikmanna Breiðabliks hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þjálfara liðsins, en hún var vægast sagt hrikaleg slök og þá sérstaklega í síðari hálfleiknum, sem var eign heimamanna.Ólafur K: Fyrsta korterið í seinni hálfleik eyðileggur leikinn „Ég var nokkur sáttur við frammistöðuna hjá okkur í fyrri hálfleiknum. Sóknarleikurinn var að ganga ágætlega og vorum við að fá ágætis tækifæri. Það var hinsvegar allt annað upp á teningnum í seinni hálfleiknum þar sem við vorum arfaslakir. Við vorum í ágætis séns þegar við byrjum síðari hálfleikinn, en fyrsta korterið í honum drepur leikinn. Við áttum aldrei möguleika eftir það," sagði Ólafur. „Það voru mjög margir í liðinu virkilega slakir í leiknum og nokkuð ólíkir sjálfum sér. Ég hef enga trú á þvi að leikmenn fari inn á völlinn án þess að trúa á sjálfa sig. Það var bara margt sem var ekki að ganga upp í leiknum og því fór sem fór," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks í leikslok.Heimir: Erum að bæta okkur jafnt og þétt „Þetta var flott í dag. Seinni hálfleikurinn var virkilega góður hjá okkur fannst mér. Við vorum ekkert sérstakir í þeim fyrri og vorum við ekki að nýta breidd vallarins nægilega vel. Við breyttum því algjörlega í þeim seinni og nýttum okkur vængina vel og skoruðum góð mörk í kjölfarið. Við hefðum í rauninni átt að skora fleiri mörk í leiknum en ég er sáttur," sagði Heimir. FH-ingar eru búnir að byrja mótið virkilega vel og hafa unnið þrjá leiki í röð eftir jafntefli í fyrsta leik. Heimir sagði að liðið væri að verða betra og betra með hverjum leiknum. „Við erum búnir að vera að bæta leik okkar jafnt og þétt. Við vorum ekki sáttir með frammistöðuna í fyrsta leiknum en hún hefur verið að lagast í undanförnum leikjum. Við erum með fleiri stig en í fyrra á sama tímapunkti og verður það að teljast jákvætt. Við eigum samt virkilega erfiðan leik gegn KR í Frostaskjólinu á miðvikudaginn og verða menn að mæta með rétt hugarfar í þann leik," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH í leikslok.Ólafur Páll: Stefnum alltaf á sigur „Við erum mjög ánægðir með þennan sigur. Við erum að halda hreinu í þriðja skiptið í röð sem er frábært fyrir okkur. Við höfum verið að fá á okkur mikið af mörkum í gegnum tíðina en virðumst vera að laga það núna. Við erum góðir sóknarlega og fáum alltaf okkar færi en það er jákvætt að við séum að bæta varnarleikinn," sagði Ólafur Páll. „Auðvitað er ég ánægður með að skora. Ég þurfti nú ekki að gera mikið í þessum mörkum því að ég fékk góðar sendingar frá Atla. Við höfum byrjað mótið ágætlega en megum ekki ofmetnast. Við erum búnir með þrjá heimaleiki en við erum sáttir við þessa byrjun. „Ég er bjartsýnn á framhaldið. Við förum inn í alla leiki til þess að vinna þá og stefnum að sjálfsögðu á sigur á móti KR á miðvikudaginn," sagði Ólafur Páll Snorrason, leikmaður FH að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Birkir á leið til Vals á nýjan leik Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Sjá meira