Íslenski boltinn

FH-ingar búnir semja við einn örfættan og eldfljótann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Danny Thomas.
Danny Thomas. Mynd/Nordic Photos/Getty
FH-ingar hafa ákveðið að semja við hinn 31 árs gamla Danny Thomas en leikmaðurinn hefur verið undanfarið á reynslu hjá félaginu. Thomas er þó ekki kominn með leikheimild og verður því ekki með á móti Selfoss í kvöld. Þetta kemur fram á á Fhingar.net.

Danny Thomas hefur leikið með Leicester, Hereford, Macclesfield og Tamworth á sínum ferli. Hann lék 37 leiki með Tamworth FC í ensku e-deildinni á þessu tímabili og var með 3 mörk og 3 stoðsendingar.

„Danny er örfættur, eldfljótur og getur leyst bæði stöðu bakvarðar, sem og á vængnum," segir um leikmanninn í fréttinni á Fhingar.net.

Danny Thomas mun væntanlega spila sinn fyrsta leik með FH á móti Blikum í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla eftir tæpa viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×