Körfubolti

Hrun í fjórða leikhluta hjá Drekunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hlynur og Jakob hafa verið í lykilhlutverki hjá þeim rauðklæddu undanfarin ár.
Hlynur og Jakob hafa verið í lykilhlutverki hjá þeim rauðklæddu undanfarin ár. Mynd/Valli
Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig og tók 12 fráköst er Sundsvall Dragons tapaði 94-76 gegn Solna Vikings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Heimamenn stóðu í Solna fram í fjórða leikhluta. Þá leiddu Víkingarnir með sex stigum en slátruðu Drekunum 19-7 síðustu tíu mínúturnar og unnu 18 stiga sigur.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 9 stig og Ægir Þór Steinarsson tvö stig. Drekarnir eru með 50 prósent vinningshlutfall, sex sigra og sex töp, um miðja deild. Víkingarnir komust upp að hlið Drekanna með sigrinum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×