Mun selja mig dýrt á móti KA-manni Stefán Árni Pálsson skrifar 24. ágúst 2013 10:30 Arnór ætlar sér stóra hluti í Þýskalandi. fréttablaðið/vilhelm
Arnór Þór Gunnarsson, leikmaður Berghischer, leikur sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag þegar lið hans mætir þýsku meisturunum í Kiel. Hornamaðurinn hefur verið hjá félaginu síðan árið 2010 og nú er loks draumurinn að verða að veruleika, að fá að etja kappi við bestu handknattleiksmenn veraldarinnar. „Þetta hefur verið erfiðasta undirbúningstímabil sem ég hef tekið þátt í, enda erum við komnir í efstu deild,“ segir Arnór Þór í samtali við Fréttablaðið. „Ég hef spilað í annarri deild hér í Þýskalandi í þrjú ár og núna er draumurinn orðinn að veruleika. Það eru algjör forréttindi að fá að spila handbolta á sama velli og bestu handknattleiksmenn heimsins.“ Berghischer sigraði í þýsku 2. deildinni á síðustu leiktíð og flaug upp í efstu deild. „Markmiðið hjá okkur er vissulega að halda okkur í deildinni og reyna að festa okkur í sessi sem úrvalsdeildarklúbbur. Svo getur verið að við setjum okkur fleiri markmið þegar líður á deildina.“ Arnór Þór er uppalinn Þórsari frá Akureyri og mætir í dag miklum KA-manni en Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, var lengi vel leikmaður og þjálfari KA á sínum tíma. „Þú færð ekkert dýrari nágrannaslag og á milli Þórs og KA og ég mun selja mig dýrt á móti KA-manni, en að öllu gríni slepptu þá er Alfreð einn af bestu þjálfurum handboltasögunnar og verður gaman að mæta honum.“
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira