Þarf á þessu að halda Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. maí 2013 10:00 Guðmundur Árni ásamt liðsfélögum sínum hjá Bjerringbro-Silkerborg Jannick Green (fyrir miðju) og Fredrik Petersen núverandi leikmanni Hamborgar. Þeir halda á áritaðri treyju Guðmundar. Mynd/Aðsend
Guðmundur Árni Ólafsson skrifaði í gær undir eins árs samning við danska úrvalsdeildarfélagið Mors-Thy. Hann kemur til félagsins frá stórliðinu Bjerringbro-Silkeborg. Þessi efnilegi strákur stefnir á að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu. „Ég er búinn að skrifa undir eins árs samning við Mors-Thy. Þar fæ ég að vera hornamaður númer eitt,“ sagði hinn 22 ára gamli Guðmundur Árni Ólafsson við Fréttablaðið í gær. Hann hefur undanfarin tvö ár verið í herbúðum Bjerringbro-Silkeborg þar sem hann hefur fengið mikla reynslu enda hefur liðið verið í meistaradeildinni bæði árin hans þar. „Ég er mjög ánægður með þessa lendingu. Mors-Thy lenti í fjórða sæti í ár og þetta er líka nákvæmlega það sem ég þarf á að halda á þessum tímapunkti. Ég þarf að fá að spila mikið og vera í lykilhlutverki.“ Mors-Thy var það lið sem kom mest á óvart í Danmörku í vetur og áttu fáir von á því að liðið næði fjórða sætinu. Það er mikill handboltaáhugi í bænum og þetta góða gengi hefur laðað fleiri styrktaraðila að félaginu. „Það er mikil handboltahefð þarna og þetta mun henta mér vel. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni. Liðið þurfti að draga saman seglin aðeins en það gæti gengið til baka þar sem fleiri styrktaraðilar vilja vera með.“ Mors-Thy hefur verið lengi á eftir Guðmundi Árna en hann fékk fyrst tilboð frá félaginu í kringum síðustu áramót. Nýr þjálfari er að taka við liðinu en hann heitir Anders Thomsen. „Hann er búinn að vera lengi með mig efstan á óskalistanum þannig að það er gott að fara til þjálfara sem hefur trú á manni.“ Guðmundur Árni flýgur inn í teig Valsmanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins vorið 2010.Mynd/Daníel Guðmundur Árni er uppalinn Selfyssingur en gekk í raðir Hauka áður en hann hélt í víking til Danmerkur. „Ég hef tekið miklum framförum hérna úti. Að spila í meistaradeildinni hefur kennt mér mikið og þá sér maður hvað við eigum langt í bestu lið Evrópu. Ég er farinn að skilja handboltann mikið betur,“ sagði Guðmundur Árni. Það hrundi allt hjá Bjerringbro í lok tímabilsins. Þjálfari liðsins þurfti að fara í veikindaleyfi þar sem hann höndlaði ekki álagið sem fylgdi starfinu. Liðið endaði að lokum í sjöunda sæti. „Það var aðeins byrjað að molna undan þessu áður en hann hætti. Við unnum aðeins einn af síðustu fjórum leikjum okkar. Það voru mikil vonbrigði enda enduðum við í þriðja sæti í deildinni en það fór allt til fjandans í úrslitakeppninni.“ Nordicphotos/AFP Hornamaðurinn örvhenti á sér stóra drauma fyrir framtíðina en leiðin í landsliðið er grýtt enda eru þar fyrir frábærir leikmenn eins og Þórir Ólafsson og Alexander Petersson. „Ég hef mikinn metnað fyrir því að komast í landsliðið. Ég ætla að sanna mig í dönsku úrvalsdeildinni og vonandi fer það ekki framhjá landsliðsþjálfaranum. Fyrst og fremst ætla ég að spila vel og mikið hjá Mors-Thy,“ sagði Guðmundur en hann var valinn í B-landsliðið fyrir nokkrum árum. „Ég veit að það er erfitt að komast inn en það verða einhvern tímann kynslóðaskipti,“ sagði hornamaðurinn léttur.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira