Coach K hættur við að hætta með bandaríska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2013 16:00 Mike Krzyzewski. Mynd/NordicPhotos/Getty
Mike Krzyzewski, betur þekktur sem Coach K, verður áfram þjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta en hann mun samkvæmt heimildum bandaríska fjölmiðla tilkynna þetta á blaðamannafundi í dag. Krzyzewski hefur þjálfað landsliðið frá árinu 2005 og komið því á ný í sérflokk í alþjóðaboltanum. Mike Krzyzewski, sem er orðinn 66 ára gamall, var búinn að gefa það út að hann ætlaði að hætta með liðið eftir Ólympíuleikana í London á síðasta ári en nú ætlar hann að reyna við þriðja Ólympíugullið í röð í Ríó árið 2016. Jerry Colangelo, yfirmaður landsliðsmála hjá bandaríska körfuboltasambandinu, gaf Krzyzewski góðan tíma til að hugsa um framtíðina og var ekki búinn að ráða nýjan þjálfara þrátt fyrir yfirlýsingu Mike Krzyzewski eftir leikana í London. Mike Krzyzewski mun stýra bandaríska landsliðinu á HM á Spáni 2014 sem og á ÓL í Río 2016. Bandaríska landsliðið hefur unnið 62 af 63 leikjum undir hans stjórn undanfarin sjö ár. Mike Krzyzewski er þjálfari körfuboltaliðs Duke-háskólans og hefur gert liðið fjórum sinnum að háskólameisturum síðan að hann tók við 1980, síðast árið 2010. Hann hefur unnið 957 leiki sem þjálfari í háskólaboltanum eða meira en nokkur annar þjálfari.Stórmót bandaríska landsliðsins undir stjórn Mike Krzyzewski: HM í Argentínu 1990 - brons HM í Japan 2006 - brons ÓL í Peking 2008 - gull HM í Tyrklandi 2010 - gull ÓL í London 2012 - gull
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira