Takmörkuð enskukunnátta þjálfarans veldur oft ákveðnum misskilningi Stefán Árni Pálsson skrifar 4. október 2013 06:30 Helena Sverrisdóttir er fremsta körfuboltakona landsins og hefur verið það í mörg ár. Fréttablaðið/Daníel
Helena Sverrisdóttir er á sínu fyrsta tímabili með ungverska liðinu DVTK Miskolc. Fyrstu skrefin með liðinu ætla þó ekki að vera nógu þægileg. „Ég er búin að vera með smá tognun í kálfanum núna í nokkrar vikur. Um leið og ég hvíli smá lagast þetta, en þetta virðist ekki vera orðið 100 prósent því ég tognaði í gær,“ sagði Helena Sverrisdóttir, leikmaður DVTK Miskolc, sem meiddist í leik liðsins á miðvikudagskvöldið. Miskolc-liðið vann sannfærandi útisigur, 93-56, á ungverska liðinu Cegledi EKK í Mið-Evrópu deildinni. „Ég var að koma frá læknum og það er ekkert slitið heldur tognun í vöðvanum. Þannig ég verð bara að taka því rólega næstu daga og vinna með sjúkraþjálfara og vonandi tekur það ekki of langan tíma. Ég hvíli allavega yfir helgina og missi af leik á laugardaginn en vonandi verður það eini leikurinn sem ég missi af,“ segir Helena. Helena skoraði 11 stig á fyrstu fimm mínútum leiksins en kom ekkert meira við sögu í leiknum. Tímabilið hefur farið vel af stað hjá Helenu og félögum. „Við höfum unnið báða leikina okkar í MEL-deildinni þannig að það er flott. Það er enn þá mánuður í Eurocup-deildina, en þangað til eru um tveir leikir í viku í deildinni hjá okkur. Við vorum svolítið upp og niður á undirbúningstímabilinu en erum að spila betur með hverjum leiknum þannig að það er jákvætt.“ Helena býr í Miskolc í Ungverjalandi en þar búa um 170.000 manns. „Mér líður bara nokkuð vel, þetta er lítil iðnaðarborg þar sem nánast allt er í göngufæri. Liðsfélagarnir eru hressir og fólkið í kringum klúbbinn mjög hjálpsamt. Þjálfarinn talar mjög takmarkaða ensku sem veldur oft ákveðnum misskilningi.“
Körfubolti Tengdar fréttir Helena með ellefu stig á fimm mínútum í stórsigri Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í ungverska liðinu DVTK Miskolc byrja vel í Mið-Evrópu deildinni í körfubolta en Miskolc-liðið vann sannfærandi 37 stiga útisigur á ungverska liðinu Cegledi EKK í kvöld, 93-56. 2. október 2013 17:43 Alvarlegt slys hjá mótherjum Helenu | Tveir látnir Ungverskir fjölmiðlar greina frá því að rúta með liðsmönnum kvennaliðs Gyor í körfubolta hafi hafnað utan vegar í dag. Tveir eru látnir og þurfti að taka fótinn af einum leikmanna liðsins við hné. 7. september 2013 17:29 Ekkert að Helenu Helena Sverrisdóttir er mætt til æfinga með nýja liði sínu Miskolc í Ungverjalandi. 3. september 2013 15:47 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira
Helena með ellefu stig á fimm mínútum í stórsigri Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í ungverska liðinu DVTK Miskolc byrja vel í Mið-Evrópu deildinni í körfubolta en Miskolc-liðið vann sannfærandi 37 stiga útisigur á ungverska liðinu Cegledi EKK í kvöld, 93-56. 2. október 2013 17:43
Alvarlegt slys hjá mótherjum Helenu | Tveir látnir Ungverskir fjölmiðlar greina frá því að rúta með liðsmönnum kvennaliðs Gyor í körfubolta hafi hafnað utan vegar í dag. Tveir eru látnir og þurfti að taka fótinn af einum leikmanna liðsins við hné. 7. september 2013 17:29
Ekkert að Helenu Helena Sverrisdóttir er mætt til æfinga með nýja liði sínu Miskolc í Ungverjalandi. 3. september 2013 15:47