Aron Rafn: Aldrei verið gripinn af stuðningsmönnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. mars 2014 06:30 Aron Rafn Eðvarðsson stendur sig vel í Svíþjóð. Fréttablaðið/EPA „
Við byrjuðum að spila meira sem lið,“ segir Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, í viðtali við Fréttablaðið um ástæðu þess að lið hans, Guif frá Eskilstuna, í sænsku úrvalsdeildinni hefur tekið á jafnmikinn sprett og raun ber vitni. Liðið hefur unnið ellefu leiki af tólf eftir EM-hléið, er á toppnum og getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í lokaumferðinni. „Við erum með ungt lið. Þegar ég er einn af elstu mönnum liðsins, 25 ára, þá er liðið ekki gamalt. Okkur vantaði stöðugleika til að byrja með. Við vorum að vinna leiki með tíu mörkum og tapa svo næsta kannski með átta.“ Haukamaðurinn er á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og hann skammast sín ekki fyrir að viðurkenna að hafa gengið illa að fóta sig til að byrja með.Erfitt að átta sig á hlutunum í byrjun „Það var ýmislegt sem ég gekk í gegnum. Maður var kominn í nýtt land og að læra nýtt tungumál auk þess sem maður var að læra nýja hluti frá markmannsþjálfaranum. Svo er sænski boltinn svo ótrúlega hraður. Ég átti erfitt með að átta mig á hlutunum til að byrja með en ég þurfti bara að taka eitt skref afturábak til að taka tvö skref áfram,“ segir Aron sem hefur vaxið með hverjum leiknum og varði t.a.m. þrjú víti í síðasta leik. „Þetta datt aðeins í gang í desember þar sem ég var valinn maður leiksins þrisvar í röð. Í heildina er ég búinn að vera sáttur við mína frammistöðu en það koma alltaf leikir þar sem maður er ekki upp á sitt besta. Þeir hafa verið kannski aðeins of margir fyrir minn smekk en ég nýt fulls trausts hjá Kristjáni [Andréssyni] þjálfara. Hann keypti mig til að vera númer eitt og vill að ég spili. Það er gott að vita að manni sé ekki kippt út af þótt maður fái á sig nokkur drullumörk,“ segir Aron Rafn.Geta orðið meistarar Landsliðsmarkvörðurinn nýtur leiðsagnar Finnans Jans Ekmans sem búið hefur í Svíþjóð nær alla sína ævi og var einn besti markvörður sænsku deildarinnar um árabil. „Hann er góður vinur Tomasar Svensson. Hann er alveg frábær markmannsþjálfari sem sér ásamt öðrum manni, Tomasi Forsberg, um alla grunnþjálfun markmanna í yngri flokkum Svíþjóðar,“ segir Aron Rafn sem hefur bætt sig undir handleiðslu Svíans. Aron er spenntur fyrir úrslitakeppninni og telur Guif geta farið alla leið. „Þótt við séum með ungt lið erum við líka með gott lið. Ég hef fulla trú á því að við getum allavega komist í úrslitaleikinn.“ Eskilstuna er 100.000 manna borg á austurströnd Svíþjóðar. Aron segir þar gott að búa enda stutt til Stokkhólms auk þess sem hann eyðir miklum tíma með vini sínum úr Haukum og línumanni Guif, Heimi Óla Heimissyni. „Maður eyðir kannski of miklum tíma með honum. Maður væri kannski kominn aðeins betur inn í sænskuna ef við værum ekki alltaf saman,“ segir Aron og hlær við.Leikmennirnir vinsælir Hann segir handboltaliðið það stærsta í bænum og leikmennina vinsæla. Það er til Twitter-síða þar sem fólk í borginni hendir inn myndum af leikmönnum Guif sjáist þeir í bænum, einna helst ef þeir eru jafnvel að stelast í bjór. „Ég hef aldrei verið gripinn enda verið mjög lélegur í þessu. Meira að segja í fríunum sem ég hef fengið hef ég nýtt tímann frekar í að sofa,“ segir Aron Rafn Eðvarðsson sem ætlar sér að vera áfram hjá Guif á næstu leiktíð. „Ég fer ekki fet í sumar. Hér verð ég allavega í ár til viðbótar.“
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira