Handbolti

Aron fer á kostum í auglýsingatöku fyrir Meistaradeildina | Myndband

Aron fagnar einu sinni sem oftar í vetur.
Aron fagnar einu sinni sem oftar í vetur. vísir/getty
Aron Pálmarsson er orðin ein skærasta handboltastjarna heims og okkar maður sýnir sparihliðarnar í auglýsingu fyrir úrslitahelgina í Meistaradeildinni.

EHF leyfir fólki að skyggnast á bak við tjöldin með Aroni þegar verið var að taka myndir af honum sem notaðar verða til þess að auglýsa helgina sem fram fer í Köln venju samkvæmt.

Aron er augljóslega orðinn þaulvanur í auglýsingabransanum og er með þetta allt á hreinu.

Myndbandið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×