Rannveig Rist lýsti yfir sakleysi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. október 2014 10:02 Rannveig Rist,forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vísir/Ernir
Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir Baldurs lýstu bæði tvö yfir sakleysi sínu af ásökunum um umboðssvik sem stjórnarmenn SPRON í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sérstakur saksóknari sækir málið sem var þingfest þann 13. október. Þá neituðu Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON og stjórnarmennirnir Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarsson sök en Rannveig og Jóhann áttu ekki heimangengt fyrir rúmum tveimur vikum. Fimmmenningunum er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. Í ákærunni segir að brot þeirra sé stórfellt en málið snýr að tveggja milljarða lánveitingu sparisjóðsins til Exista skömmu fyrir hrun, eða 30. september 2008. Brot þeirra er jafnframt sagt óvenjulegt í ákærunni að því leiti að lánið var það eina sem samþykkt var á árunum 2007-2008. Lánið var framlengt fjórum sinnum og var síðasti gjalddagi þess 16.mars 2009. Það var ekki greitt til baka og í ákærunni segir að það verði að telja það sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað. Í ákærunni segir jafnframt að full ástæða hafi verið fyrir meðlimi stjórnarinnar að fara varlega við ákvörðun sína og og fara eftir öllum reglum vegna slíkra lánveitinga, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin á fjármálamörkuðum á þessum tíma. Því hafi hins vegar farið fjarri að ákærðu færu eftir þeim varúðarreglum sem þeim bar skylda til í störfum sínum. Þvert á móti hafi lánið verið veitt án nokkurra trygginga og ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu. Í ljósi þess sé óhjákvæmilegt að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfelld.
Tengdar fréttir N1 skoðar ákæru á hendur Margréti Ein ákærðu í SPRON-málinu er Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1. 6. október 2014 14:56 Lánið til Exista mjög óvenjulegt Tveggja milljarða lán það eina sem veitt var á árunum 2007-2008. 9. október 2014 16:39 Rannveig Rist ákærð af sérstökum Svikin varða tveggja milljarða króna lánveitingu til Exista aðeins nokkrum dögum fyrir hrun. 5. október 2014 23:39 Rannveig áfram í forstjórastólnum Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. 6. október 2014 13:51 Lánið til Existu án nokkurra trygginga Lán sem SPRON veitti Existu 30. september 2008 að upphæð tveir milljarðar króna var eina lánið sem samþykkt var af stjórn SPRON á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í ákæru Sérstaks saksóknara gegn sparisjóðsstjóranum og fjórum stjórnarmönnum. 10. október 2014 07:00 Verður áfram í stjórn N1 Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni. 8. október 2014 11:39 Rannveig nýtur fulls trausts stjórnar HB Granda Vegna framkominnar ákæru á hendur Rannveigu Rist telur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf hennar fyrir félagið. 14. október 2014 16:12 Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum. 7. október 2014 10:15 SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi Fyrrverandi bankastjóra SPRON og þremur stjórnarmönnum er gefið að sök að hafa farið út fyrir lánaheimildir með því að veita Exista tveggja milljarða króna lán árið 2008. 13. október 2014 14:43 Mest lesið Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira
N1 skoðar ákæru á hendur Margréti Ein ákærðu í SPRON-málinu er Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1. 6. október 2014 14:56
Lánið til Exista mjög óvenjulegt Tveggja milljarða lán það eina sem veitt var á árunum 2007-2008. 9. október 2014 16:39
Rannveig Rist ákærð af sérstökum Svikin varða tveggja milljarða króna lánveitingu til Exista aðeins nokkrum dögum fyrir hrun. 5. október 2014 23:39
Rannveig áfram í forstjórastólnum Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. 6. október 2014 13:51
Lánið til Existu án nokkurra trygginga Lán sem SPRON veitti Existu 30. september 2008 að upphæð tveir milljarðar króna var eina lánið sem samþykkt var af stjórn SPRON á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í ákæru Sérstaks saksóknara gegn sparisjóðsstjóranum og fjórum stjórnarmönnum. 10. október 2014 07:00
Verður áfram í stjórn N1 Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni. 8. október 2014 11:39
Rannveig nýtur fulls trausts stjórnar HB Granda Vegna framkominnar ákæru á hendur Rannveigu Rist telur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf hennar fyrir félagið. 14. október 2014 16:12
Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum. 7. október 2014 10:15
SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi Fyrrverandi bankastjóra SPRON og þremur stjórnarmönnum er gefið að sök að hafa farið út fyrir lánaheimildir með því að veita Exista tveggja milljarða króna lán árið 2008. 13. október 2014 14:43