„Hlynur reddaði þessu“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. febrúar 2014 20:29 Hlynur í landsleik með Íslandi í Laugardalshöll. Vísir/Stefán
Sundsvall Dragons marði sigur á Uppsala Basket 99-97 í framlengdum leik í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Þrír Íslendingar komu við sögu.Hlynur Bæringsson var bæði stoðsendingahæstur (5) og frákastahæstur (7) í liði heimamanna sem leiddu með sextán stigum fyrir lokafjórðunginn. Gestirnir sneru þó við blaðinu í fjórða leikhluta og leiddu undir lok hans 90-87 þegar fimm sekúndur voru eftir.Jakob Örn Sigurðarson fékk þá tvö vítaskot. Hann skoraði úr fyrra skotinu en hið síðara missti marks. Hlynur náði hins vegar frákastinu, blakaði boltanum ofan í og jafnaði leikinn í 90-90. Því þurfti að framlengja. Jakob Örn staðfesti í samtali við Vísi að hann hefði klúðrað síðara vítinu viljandi. „Já, ég þurfti að klikka því það var svo lítið eftir. Svo reddaði Hlynur þessu,“ sagði Jakob Örn. „Það er ótrúlegt að hann hafi náð að blaka boltanum ofan í.“ Í framlengingunni höfðu heimamenn svo betur og tryggðu sér stigin tvö. Jakob Örn spilaði 39 mínútur og skoraði 14 stig. Ægir Þór Steinarsson spilaði 14 mínútur og skoraði fimm stig en kappinn hefur verið frá keppni síðan í nóvember. Sundsvall Dragons er í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig en Uppsala Basket í því sjötta með 26 stig. Tölfræðina úr leiknum í kvöld má sjá hér.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira