Hlynur "Svartskeggur" vekur athygli í Svíþjóð Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. apríl 2014 23:30 Ekki amalegt skegg hjá Hlyni. Mynd/Skjáskot af vefsíðu st.nu.
Hlynur Bæringsson og félagar í sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall Dragons féllu úr leik í úrslitakeppninni þar í landi í kvöld þegar þeir töpuðu fyrir Uppsala Basket, 90-71. Tímabilinu er því lokið hjá Hlyni, JakobiErni, ÆgiÞór og hinum Drekunum en liðið gekk í gegnum margt og mikið á tímabilinu og endaði að lokum í fjórða sæti deildarinnar. Fyrir fjórða leikinn í 8 liða úrslitunum í kvöld sem tapaðist á útivelli í Uppsala var mikið fjallað um hinn harðduglega Hlyn Bæringsson sem var annað árið í röð kjörinn besti varnarmaður deildarinnar. Það var þó skeggið myndarlega sem vefsíðan st.nu vildi hvað helst ræða en Hlynur skartar afar myndarlegu skeggi og er á síðunni kallaður „Svartskeggur“ eins og sjóræninginn alræmdi forðum daga. „Ég ákvað í nóvember að raka það ekki aftur fyrr en að tímabilinu loknu. Ég vildi prófa þetta en svo fer það af. Það verður of heitt að vera með þetta í sumar,“ segir Hlynur sem segist fá góð viðbrögð andstæðinganna í deildinni sem og vina sinna. Konan er þó ekki jafnánægð. „Henni finnst þetta of mikið. Henni líkar alveg skegg en finnst ég líta út eins og álfur. Krakkarnir elska þetta. Skeggið er mjúkt og notalegt fyrir þau,“ segir Hlynur í viðtali við st.nu. Alla greinina má lesa á sænsku hér.
Körfubolti Tengdar fréttir Uppsala sendi Drekana í sumarfrí Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir þriðja tapið gegn Uppsala Basket á útivelli í kvöld. 2. apríl 2014 16:26 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira
Uppsala sendi Drekana í sumarfrí Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir þriðja tapið gegn Uppsala Basket á útivelli í kvöld. 2. apríl 2014 16:26