Frábært að skora sigurmarkið Anton Ingi Leifsson skrifar 19. ágúst 2014 06:30 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar sigurmarkinu. vísir/getty
Gylfi Sigurðsson var hetja Swansea gegn Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Gylfi átti frábæran leik, en hann skoraði eitt og lagði upp annað fyrir Swansea í 2-1 sigri. Mikið var rætt um nýja tíma hjá Manchester United fyrir leikinn og fáir höfðu trú á því að Svanirnir myndu taka stigin þrjú. „Það eru allir himinlifandi yfir að fara með þrjú stig af Old Trafford. Ég held að það hefðu allir verið sáttir hefðum við farið með eitt stig aftur heim til Wales, en að taka þrjú stig úr fyrsta leiknum er algjörlega frábært,“ sagði Gylfi sem var nýkominn frá sjúkraþjálfara þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær. Gylfi var stuðningsmaður United í æsku og segir hann að það hafi verið stórkostleg tilfinning að skora í Leikhúsi draumanna (e. Theatre of Dreams), Old Trafford. „Ég var stuðningsmaður United þegar ég var yngri og það var frábært að skora loksins á þessum velli, hvað þá sigurmarkið í leiknum.“Gylfi Þór leggur boltann fyrir liðsfélaga sinn.vísir/gettyFengu ekki mörg dauðafæri Leikurinn var fyrsti leikur liðsins í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn hollenska knattspyrnustjórans Louis Van Gaal. Hollendingurinn hefur notast við leikkerfið 3-5-2 undanfarnar vikur en leikmönnum Swansea tókst vel að loka á það í leiknum. „Það er dálítið öðruvísi að spila við þá, þar sem þeir eru með þrjá miðverði og bakverðir þeirra eru mjög ofarlega á vellinum. Við bökkuðum aftar og ég og Bony (Wilfried, framherji Swansea) sáum bara um miðjumenn þeirra. Við leyfðum þeim ekki að byrja neitt spil frá miðjumönnunum.“ Wayne Rooney jafnaði metin fyrir Manchester United í upphafi seinni hálfleiks en leikmönnum Swansea gekk vel að verjast sóknum heimamanna. „Þeir fengu ekki mörg færi, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir breyttu svo um leikkerfi í hálfleik og fóru í 4-4-2. Þeir skoruðu úr hornspyrnu og það var mikil pressa á okkur í síðari hálfleik og við fórum of aftarlega, en við náðum að loka vel á þá og þeir sköpuðu sér ekki mörg dauðafæri.“Gylfi Þór í baráttunni við 35 milljóna punda manninn Ander Herrera.vísir/gettyMiklar breytingar Landsliðsmaðurinn er ánægður með að vera kominn aftur til Swansea og segir að félagið sé að þróast í rétta átt, frá því hann spilaði þar hálft tímabil. „Það hafa verið töluverðar breytingar síðan ég var hér síðast. Það eru komin tvö aukaár sem félagið er búið að vera í úrvalsdeildinni og það er á uppleið. Það er verið að byggja nýtt æfingasvæði sem er nánast tilbúið, en það verður fullklárað í janúar eða febrúar. Aðstæður eru miklu betri og allt í kringum liðið hefur batnað síðan ég var hér síðast,“ sagði spyrnusérfræðingurinn og segir að leikmenn Swansea hafi ekkert farið fram úr sér eftir sigurinn á United. „Það skiptir mestu máli að tryggja okkar sæti í deildinni á næsta tímabil og síðan förum við að hugsa um að enda tímabilið í efri hlutanum,“ sagði hann og segir að það hafi verið dálítið skrýtið að vera með Garry Monk sem þjálfara í upphafi, en Garry og Gylfi spiluðu saman síðast þegar Gylfi var hjá Swansea. Hann tók við liðinu af Michael Laudrup í febrúar eftir að hafa verið fyrirliði þess undanfarin ár. „Það var dálítið skrýtið að vera með hann sem þjálfara fyrstu vikurnar. Maður er að venjast þessu núna og hann er mjög fínn. Hann bjóst ekki við þessu; að fá starf svona ungur sem þjálfari í úrvalsdeildinni, en hann er að nýta það tækifæri. Hann er mjög vel undirbúinn og fínn þjálfari,“ sagði Gylfi um fyrrverandi liðsfélaga sinn og núverandi þjálfara.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi: Þjálfarinn lagði leikinn frábærlega upp Gylfi Sigurðsson hetja Swansea á Old Trafford var skiljanlega himinlifandi eftir sigurinn. Gylfi segir að liðið hafi sýnt mikinn karakter. 16. ágúst 2014 14:08 Monk: Þess vegna keyptum við Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson afgreiddi "sitt“ félag þegar hann skoraði sigurmarkið og lagði upp hitt í 2-1 sigri Swansea á Manchester United á Old Trafford. 18. ágúst 2014 06:00 Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00 Meulensteen: United þarf fjóra heimsklassaleikmenn Fyrrum aðstoðarþjálfari Manchester United, Rene Meulensteen, telur að Louis Van Gaal, knattspyrnustjóri liðsins, þurfi fjóra heimsklassa leikmenn til þess að geta barist um Englandsmeistaratitilinn. 18. ágúst 2014 09:00 Gylfi hetja Swansea á Old Trafford | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Swansea gegn Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í ár. 16. ágúst 2014 11:15 Gylfi þriðji Íslendingurinn til að skora á Old Trafford Gylfi Þór Sigurðsson bættist í hóp þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Heiðars Helgusonar þegar hann skoraði á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar i fótbolta í dag. 16. ágúst 2014 13:24 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira
Gylfi: Þjálfarinn lagði leikinn frábærlega upp Gylfi Sigurðsson hetja Swansea á Old Trafford var skiljanlega himinlifandi eftir sigurinn. Gylfi segir að liðið hafi sýnt mikinn karakter. 16. ágúst 2014 14:08
Monk: Þess vegna keyptum við Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson afgreiddi "sitt“ félag þegar hann skoraði sigurmarkið og lagði upp hitt í 2-1 sigri Swansea á Manchester United á Old Trafford. 18. ágúst 2014 06:00
Lykilatriðið er að fá að spila Gylfi Þór Sigurðsson verður eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Gylfi gekk til liðs við Swansea á ný í sumar eftir tvö ár hjá Tottenham en hann hafði fengið nóg af því að sitja á bekknum eða vera út á kanti. Gylfi verður í eldlínunni með Swansea í hádegisleiknum gegn Manchester United. 16. ágúst 2014 08:00
Meulensteen: United þarf fjóra heimsklassaleikmenn Fyrrum aðstoðarþjálfari Manchester United, Rene Meulensteen, telur að Louis Van Gaal, knattspyrnustjóri liðsins, þurfi fjóra heimsklassa leikmenn til þess að geta barist um Englandsmeistaratitilinn. 18. ágúst 2014 09:00
Gylfi hetja Swansea á Old Trafford | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Swansea gegn Manchester United á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í ár. 16. ágúst 2014 11:15
Gylfi þriðji Íslendingurinn til að skora á Old Trafford Gylfi Þór Sigurðsson bættist í hóp þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Heiðars Helgusonar þegar hann skoraði á Old Trafford í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar i fótbolta í dag. 16. ágúst 2014 13:24