Viðskipti við Rússa ganga sinn vanagang Svavar Hávarðsson skrifar 29. september 2014 10:00 Verð íslenskra sjávarafurða í Rússlandi helst svipað og fyrir bann. Fréttablaðið/óskar
Spár um mikil áhrif af innflutningsbanni Rússa á vöruinnflutning frá Noregi og Evrópusambandsríkjunum á verðmyndun íslensks sjávarfangs til hækkunar hafa ekki ræst. Ekkert ber á því að Norðmenn reyni að koma sínum afurðum á Rússlandsmarkað með því að landa í Færeyjum eða hér á landi. Friðleifur Friðleifsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Iceland Seafood, segir að helsta breytingin sé að íslenskir söluaðilar fari mun varlegar á Rússlandsmarkaði en áður var. „Mörg fyrirtæki höfðu unnið mikið starf við að verða sér úti um greiðslufallstryggingar á rússnesk fyrirtæki. Viðskiptabannið varð þess valdandi að fyrirtækin misstu þessar tryggingar. Viðskiptahættir hafa horfið aftur um mörg ár því nú þarf að biðja um fyrirfram greiðslur, eða selja upp á kredit,“ segir Friðleifur og að sent sé minna magn í einu, en í staðinn örar. Sögur um að Norðmenn séu með einhverjar kúnstir við að koma fiski á markað með löndunum á Íslandi og Færeyjum telur Friðleifur að séu úr lausu lofti gripnar. Norðmenn séu ábyrgir í sínum viðskiptaháttum, og taki enga áhættu með mikilvægan markað til lengri tíma. Friðleifur segir að verð á íslensku sjávarfangi, aðallega síld og makríl, sé áþekkt og á undanförnum árum. „Við tökum þessu rólega og vinnum þetta frá viku til viku,“ segir Friðleifur.
Mest lesið Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira