Varaþingmaður Framsóknar hættir vegna moskumálsins Kjartan Atli Kjartansson skrifar 17. júlí 2014 14:38 Þorsteinn sat á þingi fyrir Framsókn i vetur. Vísir/Vilhelm
Þorsteinn Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins og meðlimur í kjördæmaráði flokksins í Reykjavík, hefur sagt sig úr flokknum vegna málflutnings framboðs flokksins í Reykjavík um afturköllun lóðar til Félags múslima og þagnar flokksforystunnar í kjölfarið. Þorsteinn er fyrsti varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og sat á þingi í vetur í fjarveru Frosta Sigurjónssonar og Sigrúnar Magnúsdóttur. Þorsteinn lagði ásamt fleirum fram tillögu á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins, sem fór fram í síðustu viku, þar sem málflutningur framboðsins í Reykjavík hefði verið harmaður og grunngildi flokksins um mannréttindi og trúfrelsi voru ítrekuð. Sú tillaga náði ekki fram að ganga en þess í stað var samþykkt tillaga þar sem grunngildin voru áréttuð en engar athugasemdir gerðar við málflutning framboðsins.Forystan lét hjá líða að gera athugasemdirÞorsteinn sendi frá sér tilkynningu, skömmu eftir hádegi. Þar segir hann meðal annars: „Formaður og flest annað lykilfólk í forystu Framsóknarflokksins lét hjá líða að gera opinberlega athugasemdir við framgöngu framboðsins í Reykjavík meðan á kosningabaráttunni stóð. Þá fela orð formanns flokksins undanfarið að mínum dómi í sér fullkomna afneitun á því að nokkuð hafi verið athugavert við það hvernig kosningabarátta framboðsins var háð. Verða orð hans vart skilin öðruvísi en hann hafi ekkert við umræddan málflutning framboðsins að athuga. Flokkurinn hefur að mínu áliti engan veginn gert málið upp með viðunandi hætti.“Alið á andúð á tilteknum trúarhópi Þorsteinn gagnrýnir framgöngu Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur og annarra sem stóðu að framboði Framsóknar og flugvallarvina í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í maí: „Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga nú í vor birtist ítrekað af hálfu framboðs Framsóknar og flugvallarvina boðskapur sem helst varð skilinn svo að framboðið teldi að með tilkomu mosku í Reykjavík ykjust líkur á ýmsum samfélagslegum vandamálum, þ.á m. lögbrotum. Birtist þessi boðskapur í samhengi við og í kjölfarið á yfirlýsingum frambjóðenda um að afturkalla bæri úthlutun á lóð undir mosku til Félags múslima á Íslandi. Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að samfélagsleg vandamál hafi tengst félaginu eða meðlimum þess umfram aðra þjóðfélagshópa hingað til. Með þessu var annað hvort meðvitað eða ómeðvitað alið á andúð á tilteknum trúarhópi í kosningabaráttu en slíkt sæmir engan veginn siðuðu stjórnmálaafli. Umræðan sem framboðið efndi til var að mínu mati tilefnislaus, meiðandi í garð múslima og til þess fallin að ýta undir fordóma og mismunun. Þá fær hún að mínum dómi með engu móti samræmst grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins, enda birtust þar viðhorf sem tengjast mun frekar þjóðernissinnaðri íhaldsstefnu heldur en frjálslyndri miðjustefnu.“ Lagði fram tillögu á miðstjórnarfundi Samkvæmt heimildum Vísis lagði Þorsteinn ásamt fleirum fram tillögu á miðstjórnarfundi flokksins sem fór fram í síðustu viku. Tillagan fjallaði meðal annars ummálflutning framboðsins í Reykjavík fyrir kosningar og var stefna flokksins í mannréttindamálum ítrekuð. Einnig kom fram í tillögunni að ekki ætti að afturkalla lóð til Félags múslima. Tillagan var ekki samþykkt. Þetta staðfestir Þorsteinn í samtali við Vísi. Hann segist ekki hafa fundið nægilega sterkan vilja til þess að taka á málinu með afgerandi hætti á miðstjórnarfundinum. „Ég vil samt taka það skýrt fram að það var enginn að tala gegn múslimum eða útlendingum á fundinum. En af einhverjum ástæðum virðist ekki hafa verið vilji til að taka á þessu með beinum hætti. Ég veit ekki af hverju svo var, kannski er bara best að flokksforystan og formaðurinn skeri úr um það.“ Þorsteinn telur jafnframt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi ekki tekið nógu skýrt á málinu. „Nei, mér finnst persónulega að hann hefði getað afgreitt málið strax fyrir kosningar og á miklu skýrari hátt. Hann virðist líta svo á að þeir sem setji út á þessi ummæli og málflutning fyrir kosningar séu andstæðingar flokksins. Hann hefur ekki tjáð sig efnislega um þennan málflutning framboðsins á nægilega skýran hátt og virðist ekki hafa neitt við hann að athuga.“Ekki úthugsað útspil Áður en Þorsteinn sagði sig úr Framsóknarflokknum í dag sat hann í kjördæmaráði flokksins í Reykjavík. Hann segist ekki halda að ummæli Sveinbjargar Birnu og stefna flokksins í þessu máli hafi verið úthugsað útspil. „Ég varð allavega ekki var við að svo væri. Ef það er staðreyndin hafa samræður um það farið fram í einhverjum lokuðum fámennum hópum. Ég hef engar upplýsingar um að svo hafi verið.“ Strax daginn eftir að Sveinbjörg Birna lýsti því yfir að hún vildi afturkalla lóð til Félags múslima, sendi Þorsteinn frá sér tilkynningu. Þar sagði hann meðal annars: „Það hlýtur að vera réttmæt krafa að talsmenn flokksins, hvort sem er í landsmálum eða á sveitarstjórnarstigi, hagi málflutningi sínum í samræmi við hana [þ.e. grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins] en hafni sjónarmiðum sem eru til þess fallin að ýta undir mismunun.“ Þorsteinn segir að Framsóknarflokkurinn skilgreini sig sem frjálslyndan félagshyggjuflokk en. En boðskapurinn sem birtist af hálfu framboðs Framsóknar og flugvallarvina í þessu tiltekna máli sé frekar í anda þjóðernissinnaðs íhaldsflokks. „Mér finnst það ansi skrýtin túlkun á frjálslyndi að leyfa svona þessum boðskap framboðsins að standa, án þess að gera athugasemdir við hann.“ Snædís Karlsdóttir er næst á lista til að taka við sæti Þorsteins í Reykjavíkurkjördæim Norður. Hún er ekki viss um hvort hún tekur við sem varaþingmaður í stað hans en segir marga vera að hugsa sig um í flokknum af sömu ástæðu og Þorsteinn. Margir séu á sömu línu og hann.Uppfært klukkan 15:10 Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Sigmund Davíð Gunnlaugsson vegna afsagnar Þorsteins. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar, sagði í samtali við fréttastofu að forsætisráðherra væri í sumarleyfi í það minnsta út vikuna.
Tengdar fréttir „Ég túlka þögn forystunnar þannig að ég eigi að fá að sigla þessu skipi í höfn“ Sveinbjörg Birna vill einnig draga til baka lóðaúthlutun til Ásatrúarmanna. Hún segist virða tjáningarfrelsi utanríkisráðherra og þingflokkformanns. 27. maí 2014 16:26 Hættu við að lýsa yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu Stjórn ungra Framsóknarmanna birti í gærkvöldi harðorða ályktun þar sem lýst er yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu Birnu Sveinbjarnardóttur, oddvita flokksins í Reykjavík. Yfirlýsingin var fjarlægð skömmu síðar og engir hlutaðeigandi hafa látið ná í sig í morgun til að gefa skýringar á málinu. 29. maí 2014 13:42 Sigmundur Davíð um íslensk stjórnmál: „Mjög fáir sem þora að segja eitthvað ögrandi“ Forsætisráðherra er andvigur byggingu mosku í Sogamýri en telur að múslimar eigi að fá að byggja sitt bænahús ef það fellur að umhverfinu. 1. júní 2014 14:10 Sveinbjörg Birna um andstæðinga múslima: „Þeir veðjuðu á rangan hest“ Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir var spurð hvort að Framsóknarflokkurinn ætlaði að beita sér fyrir afturköllun lóðarinnar. „Nei, en við ætlum að beita okkur fyrir því að það fari fram lögleg stjórnsýsla í Reykjavík.“ Vísir fer yfir ummæli Sveinbjargar fyrir borgarstjórnarkosningarnar. 18. júní 2014 17:19 Segir frásögn Guðrúnar Bryndísar ósanna Benedikt Þór Gústafsson, meðstjórnandi kjördæmasambands Framsóknarflokksins, segist ekki styðja málflutning innan Framsóknarflokksins um að afturkalla lóð til múslima. 29. maí 2014 17:31 Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Sjá meira
„Ég túlka þögn forystunnar þannig að ég eigi að fá að sigla þessu skipi í höfn“ Sveinbjörg Birna vill einnig draga til baka lóðaúthlutun til Ásatrúarmanna. Hún segist virða tjáningarfrelsi utanríkisráðherra og þingflokkformanns. 27. maí 2014 16:26
Hættu við að lýsa yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu Stjórn ungra Framsóknarmanna birti í gærkvöldi harðorða ályktun þar sem lýst er yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu Birnu Sveinbjarnardóttur, oddvita flokksins í Reykjavík. Yfirlýsingin var fjarlægð skömmu síðar og engir hlutaðeigandi hafa látið ná í sig í morgun til að gefa skýringar á málinu. 29. maí 2014 13:42
Sigmundur Davíð um íslensk stjórnmál: „Mjög fáir sem þora að segja eitthvað ögrandi“ Forsætisráðherra er andvigur byggingu mosku í Sogamýri en telur að múslimar eigi að fá að byggja sitt bænahús ef það fellur að umhverfinu. 1. júní 2014 14:10
Sveinbjörg Birna um andstæðinga múslima: „Þeir veðjuðu á rangan hest“ Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir var spurð hvort að Framsóknarflokkurinn ætlaði að beita sér fyrir afturköllun lóðarinnar. „Nei, en við ætlum að beita okkur fyrir því að það fari fram lögleg stjórnsýsla í Reykjavík.“ Vísir fer yfir ummæli Sveinbjargar fyrir borgarstjórnarkosningarnar. 18. júní 2014 17:19
Segir frásögn Guðrúnar Bryndísar ósanna Benedikt Þór Gústafsson, meðstjórnandi kjördæmasambands Framsóknarflokksins, segist ekki styðja málflutning innan Framsóknarflokksins um að afturkalla lóð til múslima. 29. maí 2014 17:31