Slegist um viðtöl við Ólaf sem fékk konunglega móttöku | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. mars 2015 19:26 Ólafur Stefánsson og Arnór Atlason fagna meistaratitlinum í Danmörku 2010. vísir/epa
Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, mætti á æfingu hjá Danmerkurmeisturum KIF Kolding Köbenhavn í dag.Eins og kom fram á miðvikudaginn reif Ólafur skóna fram úr hillunni og æfir með dönsku meisturunum næstu daga. Takmarkið er að hann spili tvo leiki gegn Zagreb í Meistaradeildinni, en KIF er í miklum meiðslavandræðum. Ólafur fékk konunglega móttöku á æfingunni í dag þar sem hann hitti gamla vini og liðsfélaga. Hann faðmaði t.a.m. Kasper Hvidt, fyrrverandi danska landsliðsmarkvörðinn, vel og innilega. Þeir spiluðu saman hjá AG Kaupmannahöfn áður en það fór í þrot og sameinaðist KIF Kolding. Undir stjórn Arons Kristjánssonar varð liðið deildar- og bikarmeistari á síðustu leiktíð. „Velkominn Ólafur. Það gleður okkur mikið að fá að fylgjast með þér á æfingum næstu daga,“ segir á Facebook-síðu KIF. KIF notar svo kassmerkið #velkommenolafur en svo er spurning hvort hann verði kvaddur með #takolafur eins og Íslendingar þökkuðu honum fyrir með kassmerkinu #takkóli. Því er svo bætt við á Facebook-síðu KIF Kolding Köbenhavn að slegist hafi verið um viðtöl við Ólaf eftir æfinguna. Almennt sé mikil spenna fyrir því að sjá hann aftur í Alþjóðlegum handbolta. Það má sjá Óla mæta á æfingu í „tásuskónum“ hér að neðan.Post by KIF Kolding København.
Handbolti Tengdar fréttir Aron: Ef einhver getur gert þetta er það Óli Vonast til að Ólafur Stefánsson geti spilað tvo leiki í Meistaradeildinni. 2. mars 2015 17:41 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira
Aron: Ef einhver getur gert þetta er það Óli Vonast til að Ólafur Stefánsson geti spilað tvo leiki í Meistaradeildinni. 2. mars 2015 17:41