Snorri Steinn og Ásgeir með tíu mörk saman í flottum sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2015 22:32 Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk í kvöld. Vísir/AFP
Íslendingaliðið Nimes vann glæsilegan fjögurra marka sigur á einu af efstu liðum deildarinnar í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Nimes vann Montpellier 33-29 en Montpellier var fyrir leikinn búið að vinna 5 af fyrstu 6 leikjum sínum í deildinni. Sigurinn kemur Nimes upp í fimmta sæti deildarinnar en liðið var aðeins búið að ná í eitt stig út úr tveimur síðustu leikjum sínum. Snorri Steinn Guðjónsson var næstmarkahæstur hjá Nimes með 7 mörk úr 12 skotum en hann klikkaði á eina víti sínu í leiknum. Snorri Steinn átti einnig 3 stoðsendingar samkvæmt tölfræði frönsku deildarinnar. Ásgeir Örn Hallgrímsson var með 3 mörk og 4 stoðsendingar í leiknum og Íslendingarnir voru því saman með tíu mörk og sjö stoðsendingar í þessum flotta sigri í kvöld. Hinn tvítugi Steven George var markahæstur hjá Nimes með átta mörk en hann nýtti öll skotin sín í leiknum. Nimes var 19-15 yfir í hálfleik og Snorri Steinn fór langt með innsigla sigurinn þegar hann kom liðinu sex mörkum yfir, 33-27, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir.
Handbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira