Frelsissvipting í Hlíðunum: Ákærðu hlutu allir skilorðsbundna dóma Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. apríl 2015 14:14 Ríkharð og Davíð á leið í aðalmeðferð í héraðsdómi í ótengdu máli. Vísir/GVA
Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, Davíð Fjeldsted (áður Davíð Freyr Rúnarsson) og Magnús Sigurjón Einarsson hlutu allir skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir aðkomu sína að frelsissviptingarmáli í Hlíðarhverfinu í Reykjavík í desember árið 2010. Ríkharð hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Davíð tveggja ára dóm og Magnús Sigurjón eins árs dóm. Dómar Ríkharðs og Davíðs, sem eiga brotaferil að baki, eru skilorðsbundnir til þriggja ára en dómur Magnúsar til tveggja ára. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á öðrum tímanum í dag.Helltu upp í manninn þvottaefni Mennirnir voru sakaðir um að hafa í bakherbergi á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg í Reykjavík veist að öðrum karlmanni á fertugsaldri og krafið hann um peninga, slegið og sparkað ítrekað í höfuð og líkama hans og svipt hann frelsi sínu í því skyni að þvinga hann til að láta fé af hendi. Dómurinn hefur ekki verið birtur en í ákærunni segir að þeir hafi síðan flutt manninn í íbúð í Hlíðahverfi í Reykjavík þar sem þeir slógu hann ítrekað með hnefum, hnúajárnum, kylfu og helltu upp í hann þvottaefni.Sjá einnig:Þorðu ekki að kæra vegna tengsla undirheima við lögreglu Þá hafi þeir brennt hann með sígarettu og hótað að klippa af honum fingur og eyru. Á meðan þessu stóð hafi þeir afklætt manninn og haldið honum fjötruðum og kefluðum yfir nótt í baðkeri í íbúðinni. Maðurinn var látinn laus síðdegis 20. desember eftir að faðir hans samþykkti að leggja eina milljón króna inn á bankareikning eins ákærða. Áður en hann var látinn laus hótuðu þremenningarnir honum að ef hann kærði brotin til lögreglu yrði honum og fjölskyldu gert mein. Þar á meðal að honum og systur hans yrði nauðgað.Greiða feðgunum bætur Þremenningarnir voru dæmdir til að greiða eina milljón króna í bætur ásamt vöxtum til mannsins sem sviptur var frelsi sínu. Þá þurfa þeir að greiða föður hans eina og hálfa milljón króna ásamt vöxtum. Ríkharð greiðir verjanda sínum rúma milljón í málsvarnarlaun, en Magnús og Davíð greiða sínum lögmönnum rúmlega 600 þúsund krónur.
Tengdar fréttir Brotaþoli í frelsissviptingarmáli: Hótuðu að klippa af einn putta á sólarhring „Puttarnir mínir voru settir í klippur,“ segir brotaþoli. Hann hafi ekki hafa þorað að leggja fram kæru fyrr en systir hans, sem ákærðu höfðu hótað að nauðga, var flutt til útlanda. 9. apríl 2015 10:42 Frelsissvipting í Hlíðunum: „Ég átti í útistöðum við hálfan bæinn á þessum tíma” Ríkharð Júlíus Ríkharðsson segist hafa snúið við blaðinu. Hann bar við minnisleysi í héraðsdómi í morgun en hann játaði brot sín við skýrslutöku hjá lögreglu. 9. apríl 2015 10:06 Faðir brotaþola: Þorðum ekki að kæra vegna tengsla undirheima við lögreglu Faðir brotaþola í frelsissviptingarmáli segir fjölskylduna hafa íhugað alvarlega að flytja úr landi. Hann rak fyrirtæki undir sama þaki og Geiri á Goldfinger og stóð ekki á sama. 9. apríl 2015 11:37 Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira
Brotaþoli í frelsissviptingarmáli: Hótuðu að klippa af einn putta á sólarhring „Puttarnir mínir voru settir í klippur,“ segir brotaþoli. Hann hafi ekki hafa þorað að leggja fram kæru fyrr en systir hans, sem ákærðu höfðu hótað að nauðga, var flutt til útlanda. 9. apríl 2015 10:42
Frelsissvipting í Hlíðunum: „Ég átti í útistöðum við hálfan bæinn á þessum tíma” Ríkharð Júlíus Ríkharðsson segist hafa snúið við blaðinu. Hann bar við minnisleysi í héraðsdómi í morgun en hann játaði brot sín við skýrslutöku hjá lögreglu. 9. apríl 2015 10:06
Faðir brotaþola: Þorðum ekki að kæra vegna tengsla undirheima við lögreglu Faðir brotaþola í frelsissviptingarmáli segir fjölskylduna hafa íhugað alvarlega að flytja úr landi. Hann rak fyrirtæki undir sama þaki og Geiri á Goldfinger og stóð ekki á sama. 9. apríl 2015 11:37